USD 123,6 0,3%
EUR 136,6
GBP 163,5
DKK 18,3
SEK 12,3 -0,4%
NOK 12,9 -0,1%
CHF 147,4 -0,4%
CAD 86,7 0,2%
JPY 0,8 0,1%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 397.710
USD 123,6 0,3%
EUR 136,6
GBP 163,5
DKK 18,3
SEK 12,3 -0,4%
NOK 12,9 -0,1%
CHF 147,4 -0,4%
CAD 86,7 0,2%
JPY 0,8 0,1%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 397.710
Til baka

Um virði og virð­is­mat í list­grein­um

Forseti Bandalags íslenskra listamanna skrifar um bókhald, peninga og listir

Hver ræður_ Jóna Hlíf
Jóna Hlíf Halldórsdóttir, Hver stjórnar? (2024) verk í eigu Listasafnsins á Akureyri
Mynd: Listasafn Akureyrar

Á síðasta ári kom skýrslan Framlag menningar og skapandi greina til verðmætasköpunar á Íslandi út, á vegum menningar- og viðskiptaráðuneytis. Höfundur skýrslunnar er Ágúst Ólafur Ágústsson. Þótt um hálft ár sé liðið síðan, og stjórnarskipti hafi farið fram, eru niðurstöður hennar enn áhugaverðar og mikilvægar. Skýrslan mun vafalítið þjóna menningu og samtalinu um hagrænt gildi hennar um komandi ár. Það var löngu tímabært að hægt yrði að fjalla um menningu og listir út frá tölulegum forsendum og vísa til opinberra upplýsinga um hagræn áhrif menningar hér á landi. Eftir þessu hefur verið kallað í mörg ár. Niðurstöðurnar eru almennt jákvæðar og varpa ljósi á mikilvægi menningar og lista fyrir hagkerfið í heild. Skýrslunni fylgja fjölmargar tillögur um menningargeirann, sem benda til að vinnsla skýrslunnar hafi verið vönduð.

Umrædd skýrsla snertir á tveimur málefnum sem eru mér að jafnaði hugleikin. Annars vegar virði lista, hins vegar virðismat þeirra. Það er eðlilegt að skýrslunni sé ætlað að undirstrika það fyrrnefnda með vísan til þeirra aðferða sem hagfræði og viðskiptafræði styðjast við til að leggja mat á hagræn og fjárhagsleg áhrif af listum og menningu. Að mínu mati gerir hún það vel, meðal annars því þar koma fram upplýsingar um takmörk þeirra aðferða og forsenda sem eru undirliggjandi. Þar má til dæmis nefna undirliggjandi skilgreiningar á hvað felist í menningarstarfi og mat á svonefndum margföldurum og óbeinum áhrifum af menningarstarfi.

Bókhald sem listgrein

Áður en dýpra er haldið í umfjöllun um skýrsluna um margfaldara og óbein áhrif, er stuttur útúrdúr á persónulegum nótum nauðsynlegur. Þannig er að ég hef alltaf verið sérstaklega áhugasöm um það þegar fólk talar um málefni sem „listir“ eða „listgreinar” í óeiginlegri merkingu. Til dæmis um matargerð sem list, eða að hversdagsleg málefni séu listir, eins og til dæmis listin að halda jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Ein óvæntasta „listgreinin” sem ég hef þannig kynnst er listgreinin sem felst í framkvæmd virðismats. Ég er nokkuð þakklát fyrir þann skilning sem opnaðist mér á þeirri listgrein í samtali við – af öllum mönnum – endurskoðanda. Þessi ágæti endurskoðandi opnaði sem sagt augu mín fyrir því að meira að segja endurskoðun geti verið skapandi vegna þess að matsreglur geta verið svo opnar að þær verða út af fyrir sig eins og listgrein.

Ég hef enga ástæðu til að véfengja orð endurskoðandans. Þetta er örugglega rétt út af fyrir sig.

Peningar ekki mælikvarði alls

Staðreyndin er hins vegar sú, burtséð frá því hvaða aðferðir eru réttar við að leggja saman tölur, draga þær hverja frá annarri og birta niðurstöðu – að tölur og aðferðir eru ekki upphaf og endir alls.

Ekki heldur peningar.

Og hvorki tölur, aðferðir né peningar munu nokkurn tímann verða …

Fáðu áskrift til að lesa

Áskrift að Vísbendingu hæfir þeim sem hafa gaman að óvilhöllum greiningum og gagn af greinargóðum upplýsingum um efnahagsmál, viðskipti og nýsköpun.

Næsta grein

Mest lesið
1
Efnahagsmál

Uppskeruhátíð hagfræðinga

2
Aðrir sálmar

Þjóðarhagsleg rekstrarhagfræði

3
Aðrir sálmar

Stjórnun og traust

4
Vinnumarkaður

Endalok pólska tímabilsins?

5
Efnahagsmál

Burðug sveitarfélög geta stutt við ábyrga hagstjórn

6
Vinnumarkaður

Ofmetur launavísitalan þróun launa?

Vetur
Efnahagsmál 37. tbl.

Um virði hagtalna

Traust á opinberum hagtölum skiptir sköpum fyrir hagstjórn og ákvarðanatöku.
Framkvæmdir í Reykjavík
Efnahagsmál 36. tbl.

Hvað er sjálf­bær launa­þró­un?

Verðbólga, framleiðni og mörk launasvigrúmsins

Anti-Fascist Economics 2026 Isabella Weber
Efnahagsmál 36. tbl.

Póli­tísk­ar af­leið­ing­ar efna­hags­legr­ar óvissu

Lífskjarakrísan: Stýrivextir eru harkalegt tól í baráttunni gegn hækkandi verði á nauðsynjavörum
IMG_2494
Umhverfi 35. tbl.

Ís­lensk­ir jökl­ar á hverf­anda hveli

Loftslagsbreytingar hafa mikil áhrif á íslenska jökla. Vegna hlýnunar jarðar hafa jöklarnir minnkað mikið á síðustu áratugum. Ef ekkert verður gert til að draga úr hlýnuninni gætu margir þeirra horfið í framtíðinni.