USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
Til baka

Við báð­um um vinnu­afl og feng­um fólk

Zürich, Sviss
Zürich í Sviss.
Mynd: Unsplash

Stór hluti fólksfjölgunar á Íslandi síðustu ár er drifinn áfram af erlendu vinnuafli sem kemur til Íslands til að vinna hjá íslenskum fyrirtækjum. Á íslenskum vinnumarkaði, samkvæmt tölum Hagstofu Íslands, eru rúmlega 207.000 starfandi einstaklingar (1. ársfjórðungur 2023). Af þessum 207.000 einstaklingum eru ríflega 161.000 með íslenskan bakgrunn en rúmlega 45.000 innflytjendur.

Dreifing þessa vinnuafls er afskaplega ójöfn. Mynd 1 sýnir að á meðan innflytjendur eru um 20% af heildarfjölda starfandi á Íslandi er hlutfall þeirra hæst í rekstri gististaða, í fiskiðnaði og matvæla- og drykkjarvöruiðnaði. Þá er um þriðjungur starfsmanna í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð innflytjendur. Hlutfallið er 29% í vatnsveitu, fráveitu, meðhöndlun úrgangs og afmengun.

Áhrif innflytjenda á íslenskt hagkerfi

Þannig sést að innflytjendur eru sérstaklega í:

a) ferðaþjónustu, sérstaklega rekstri gististaða

b) sjávarútvegi, sérstaklega fiskiðnaði (vinnsla)

c) matvæla- og drykkjarvöruiðnaði

d) hreinsun og meðhöndlun úrgangs.

Erlent vinnuafl sér s.s. um að:

i) hagkerfið vinni sér inn erlendar tekjur, í gegnum sjávarútveg og ferðaþjónustu, sem notaðar eru til að fjármagna innflutning og ferðalög íbúa Íslands erlendis, sem dæmi.

ii) íbúar Íslands geti fundið matvæli í næstu búð í nægu framboði.

iii) byggja fasteignir sem hýsa íbúa Íslands.

iv) hreinsa landið, borgir og stuðla að heilbrigðri meðhöndlun á úrgangi.

Lífsgæði íbúa Íslands fara eftir því hversu mikið hagkerfið getur framleitt og selt, sérstaklega til útflutnings því það eru jú útflutningtekjur hagkerfisins sem sjá til þess að hægt er að borga fyrir innflutning og ferðalög til útlanda, sem dæmi. Ef útflutningur dregst saman, t.d. vegna þess að ekki finnst fólk til að manna störf í útflutningsgreinum, verður innflutningur og neysla íbúa Íslands erlendis að dragast saman og þar með lífsgæði á Íslandi. Vart þarf svo að benda á lífsgæðin sem fólgin eru í því að hafa nóg að borða, hafa þak yfir höfuðið eða lifa í hreinu umhverfi.

Nú er réttilega bent á að skortur er á húsnæði á Íslandi vegna þess að ekki hefur verið nægilega byggt til að mæta auknum fólksfjölda sem m.a. er drifinn áfram af innflytjendum. Sjálfur hef ég heyrt raddir þess efnis í daglegu tali að óskynsamlegt sé að flytja inn útlendinga til að byggja íbúðir fyrir útlendingana sem flytja til landsins. Íslendingar eigi að vera sjálfum sér nægir þegar kemur að húsbyggingum. Íslensk hús fyrir Íslendinga.

Hlutfall erlends vinnuafls af heildarfjölda starfandi, flokkað eftir atvinnugreinum

Reynsla Svisslendinga

Sjónarmið á borð við þetta falla í gryfjuna sem sumir Svisslendingar féllu í um miðja síðustu öld. Mikil eftirspurn var eftir vinnuafli upp úr seinna stríði, eftirspurn sem var sérstaklega mætt af fólki frá Ítalíu sem fluttu til Sviss. Íhaldssömum Svisslendingum hraus hugur, sögðu fólksfjölgun of mikla og siði þeirra í hættu frá erlendum, ítölskum, áhrifum.

En Svisslendingar áttuðu sig líka á efnahagslegu áhrifum þessa fólks, það var að fylla störf í ýmsum geirum hagkerfisins þar sem vantaði vinnuafl. Max Frisch1, svissneskur rithöfundur, orðaði það svo: «man hat Arbeitskräfte gerufen, und es kommen Menschen.» Frisch benti á að það þýddi lítið fyrir litla herraþjóð að kvarta yfir fjölda erlendra vinnumanna þegar þeir fengju sér bjór eftir vinnu eða þegar þeir sæjust úti við á sunnudögum án þess að kvarta yfir þeim þegar þeir ynnu á byggingarsvæðunum, í eldhúsunum eða í verksmiðjunum. Það væri ekki bæði sleppt …

Fáðu áskrift til að lesa

Áskrift að Vísbendingu hæfir þeim sem hafa gaman að óvilhöllum greiningum og gagn af greinargóðum upplýsingum um efnahagsmál, viðskipti og nýsköpun.

Næsta grein

Mest lesið
1
Atvinna

Er atvinnuleysi innflytjenda næmara fyrir hagsveiflum?

2
Aðrir sálmar

Gylfaginning

3
Loftslagsmál

París, prósentur og prófsteinninn

4
Aðrir sálmar

Af Atómstöðinni

5
Opinber fjármál

Nýtt grunnviðmið fyrir stjórnarhætti opinberra aðila

6
Umhverfi

Ef Ísland væri borg á meginlandi Evrópu

Reykjavíkurhöfn
Efnahagsmál 32. tbl.

Hvert er mark­mið efna­hags­lífs­ins?

Mikilvægi skilnings á samhengi og hugtökum
Reykjavík

Staða há­skóla­mennt­aðra á hús­næð­is­mark­aði

Ný könnun Félagsvísindastofnunar HÍ bendir til þess að háskólamenntun ein og sér tryggi ekki greiða leið inn á húsnæðismarkað. Flestir eignast að lokum eigið húsnæði, en leiðin þangað virðist orðin lengri og kostnaðarsamari en áður og byggist oft á stuðningi fjölskyldu, skuldsetningu og miklu vinnuframlagi.
Stjórnarráðið
Efnahagsmál 31. tbl.

Til hvers eru op­in­ber fjár­mál?

Mikilvægi umræðunnar um tölur og orð

Peningar
Efnahagsmál 31. tbl.

Und­ir­liggj­andi kostn­að­ar­þrýst­ing­ur

Launa-framleiðnibilið, framlegð og atvinnustig á Íslandi
AFP__20240320__economou-notitle240319_npstx__v1__HighRes__EuFlagsInBrussels

Evr­ópa og nýi heim­ur­inn

vesturheimur og vesturveldin eru hugtök til að endurskilgreina