USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
Til baka

Vinnu­mark­að­ur frá þjóð­ar­sátt til heims­far­ald­urs

Fólk
Mynd: Bára Huld Beck

Í þessari grein verður litið yfir þróun atvinnutekna síðustu þrjá áratugi, frá þjóðarsátt 1990 til heimsfaraldurs 2020. Á þessum tíma hefur fjöldi fólks á vinnumarkaði vaxið um þriðjung (34%) eða um rétt tæplega 1% á ári að meðaltali. Verg landsframleiðsla ríflega tvöfaldaðist (113%) að raungildi á þessum þremur áratugum og jókst um 2,6% á ári að meðaltali á föstu verði. Á sama tíma jókst kaupmáttur atvinnutekna um 77%, eða um 1,9% á ári að meðaltali. Eins og mynd 1 sýnir var vöxturinn ekki stöðugur á tímabilinu. Frá 1990 til 2007 nam vöxtur atvinnutekna 3,3% á ári að meðaltali og svipaður frá 2010 til 2019, eða 3,4%. Á móti vega árin eftir bankakreppuna, en frá 2007 til 2010 lækkuðu atvinnutekjur að meðaltali að raungildi um 7,9% á ári þrjú ár í röð. Lækkunin frá 2019 til 2020 er 2,7%.

mynd1_atvinnutekjuramann
Mynd 1 - Atvinnutekjur á mann á föstu verði, verg landsframleiðsla á föstu verði og fjöldi skattgreiðenda með atvinnutekjur, 1990-2020. Vísitölur 1990=100.

Tölur þær sem unnið er með hér eru upplýsingar frá Hagstofu Íslands um atvinnutekjur sem unnar eru upp úr skattframtölum. Til atvinnutekna teljast launatekjur og aðrar starfstengdar tekjur, ökutækjastyrkur, dagpeningar og hlunnindi. Auk þess teljast reiknað endurgjald og tekjur erlendis, aðrar en fjármagnstekjur, til atvinnutekna. Upplýsingarnar byggja á skattframtölum einstaklinga og eru meðaltöl miðuð við fjölda framteljenda sem hafa viðkomandi tekjur. Hér er miðað við aldursbilið 16-74 ára. Hagstofan tekur fram að gögnin um hæstu menntun einstaklinga sé enn í þróun og því þarf að taka upplýsingum um menntun með fyrirvara.

Menntun fólks á vinnumarkaði

Ef við skiptum vinnumarkaðnum í þrennt eftir menntunarstigi, þ.e. grunnmenntun (ISCED 1, 2), starfs- og framhaldsmenntun (ISCED 3, 4) og háskólamenntun (ISCED 5, 6, 7, 8) þá sjáum við að miklar breytingar hafa átt sér stað í fjölda fólks á vinnumarkaði síðustu áratugi. Á árinu 1990 var helmingur allra á vinnumarkaði með grunnmenntun, 37% með starfs- og framhaldsmenntun en einungis 12% voru með háskólamenntun eins og sjá má á mynd 2.

mynd2_Hlutdeild einstakra hópa á vinnumarkaði eftir menntun
Mynd 2 - Hlutdeild einstakra hópa á vinnumarkaði eftir menntun.

Á þremur áratugum fór hlutdeild grunnmenntaðra einstaklinga á vinnumarkaði úr 51% niður í 28% og hafði því nánast helmingast. Aftur á móti hélst hlutfall einstaklinga með starfs- og framhaldsmenntun tiltölulega stöðugt öll þrjátíu árin og stóð enn í 37% á árinu 2020. Stærstu breytinguna má greina meðal háskólamenntaðra, en hlutdeild þeirra óx úr 12% í 35% á árinu 2020 og hafði því nánast þrefaldast. Hlutdeild háskólamenntaðra hefur lengst af verið lægra hér á landi en að meðaltali í OECD-ríkjunum, en þar er hlutdeild þeirra sem eru með háskólamenntun um 40%.

En hver var þróun tekna eftir menntun? Á mynd 3 má sjá þróun atvinnutekna þessara hópa að raungildi frá 1990 til 2020. Hér er vísitala sett á 100 fyrir alla hópana á árinu 1990. Glöggt má sjá áhrif hagsveiflunnar á þessari mynd. Það ríkti stöðnun í atvinnulífi fram til 1995, en þá tók við hagvaxtarskeið fram til bankakreppunnar. Frá 1990 til 2007 hækkuðu atvinnutekjur að meðaltali um 45%-70% að raungildi. Á meðan á bankakreppunni stóð lækkuðu atvinnutekjur töluvert að raunvirði meðal allra hópanna. Frá 2010 fara þær hækkandi að nýju, en á árinu 2020 má glöggt sjá áhrif covid-heimsfaraldursins á þróun atvinnutekna allra hópanna.

Mynd 3_Atvinnutekjur eftir menntun.
Mynd 3 - Atvinnutekjur eftir menntun. Rauntekjur, Vísitala 1990=100

Á árinu 1990 voru meðalatvinnutekjur 1.074.000 krónur á verðlagi þess árs. Atvinnutekjur grunnmenntaðra einstaklinga voru 76% af þessari upphæð. Einstaklingar með starfs- og framhaldsmenntun voru með atvinnutekjur sem voru 14% umfram meðaltalið og atvinnutekjur háskólamenntaðra voru 57% umfram meðalatvinnutekjur á árinu 1990.

Á þrjátíu ára tímabili hækkuðu atvinnutekjur grunnmenntaðra einstaklinga mest, eða um 65%. Eftir að hafa lækkað á árinu 2006 fóru þær fljótlega vaxandi á ný og voru á árinu 2020 um níu prósentum hærri en 2006. Atvinnutekjur þeirra sem eru með starfs- og framhaldsmenntun hækkuðu minnst þessara hópa, eða um 42%. Athygli vekur að raunatvinnutekjur þessara einstaklinga voru svipaðar á árinu 2020 og þegar hæst fór á árinu 2006. Raunatvinnutekjur háskólamenntaðra einstaklinga voru 49% hærri 2020 en á árinu 1990. Þrátt fyrir það voru raunatvinnutekjurnar lægri á árinu 2020 en þær voru á árinu 2006 þegar hækkun þeirra nam 70% frá 1990. Þær voru því um 20 prósentum lægri 2020 en á árinu 2006.

Á árinu 2020 voru meðalatvinnutekjur 6.308.000 krónur á verðlagi þess árs. Nú háttar svo til að atvinnutekjur einstaklinga með grunnmenntun hafa dregist aftur úr meðaltalinu og námu 70% af því á árinu 2020 (var 76%). Einstaklingar með starfs- og framhaldsmenntun voru undir meðaltalinu (92%) á árinu 2020 en voru yfir því á árinu 1990. Aftur á móti voru laun háskólamenntaðra 32% yfir meðaltalinu en voru 57% yfir því á árinu 1990.

Hafa …

Fáðu áskrift til að lesa

Áskrift að Vísbendingu hæfir þeim sem hafa gaman að óvilhöllum greiningum og gagn af greinargóðum upplýsingum um efnahagsmál, viðskipti og nýsköpun.

Næsta grein

Mest lesið
1
Atvinna

Er atvinnuleysi innflytjenda næmara fyrir hagsveiflum?

2
Aðrir sálmar

Gylfaginning

3
Loftslagsmál

París, prósentur og prófsteinninn

4
Aðrir sálmar

Af Atómstöðinni

5
Opinber fjármál

Nýtt grunnviðmið fyrir stjórnarhætti opinberra aðila

6
Umhverfi

Ef Ísland væri borg á meginlandi Evrópu

Reykjavíkurhöfn
Efnahagsmál 32. tbl.

Hvert er mark­mið efna­hags­lífs­ins?

Mikilvægi skilnings á samhengi og hugtökum
Reykjavík

Staða há­skóla­mennt­aðra á hús­næð­is­mark­aði

Ný könnun Félagsvísindastofnunar HÍ bendir til þess að háskólamenntun ein og sér tryggi ekki greiða leið inn á húsnæðismarkað. Flestir eignast að lokum eigið húsnæði, en leiðin þangað virðist orðin lengri og kostnaðarsamari en áður og byggist oft á stuðningi fjölskyldu, skuldsetningu og miklu vinnuframlagi.
Stjórnarráðið
Efnahagsmál 31. tbl.

Til hvers eru op­in­ber fjár­mál?

Mikilvægi umræðunnar um tölur og orð

Peningar
Efnahagsmál 31. tbl.

Und­ir­liggj­andi kostn­að­ar­þrýst­ing­ur

Launa-framleiðnibilið, framlegð og atvinnustig á Íslandi
AFP__20240320__economou-notitle240319_npstx__v1__HighRes__EuFlagsInBrussels

Evr­ópa og nýi heim­ur­inn

vesturheimur og vesturveldin eru hugtök til að endurskilgreina