
Nú eru fjörutíu ár liðin síðan fyrsta vikurit Vísbendingar kom út. Blaðið hefur verið gefið út vikulega frá upphafi og alveg óslitið, að mér best vitandi. Til að fagna þeim áfanga er hér gefin út sérstök afmælisútgáfa þar sem er að finna greinar eftir reglulega greinarhöfunda og fyrrum ritstjóra um íslenskan efnahag, áskoranir, og efnahagslega þróun á þeim fjörutíu árum sem blaðið hefur verið gefið út. Slíkur áfangi gefur tækifæri til að staldra við og líta yfir farinn veg en það má ýmislegt læra af fyrri reynslu sem nýtist til úrlausna á þeim áskorunum sem íslenskur efnahagur stendur frammi fyrir í dag.
Fyrsta tölublaði Vísbendingar, sem kom út 20. júlí árið 1983, var ritstýrt af Sigurði B. Stefánssyni og gefið út af Kaupþingi. Í þeirri útgáfu er m.a. að finna umfjöllun um aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að draga úr hraða verðbólgunnar. Þar er sagt að árangur þeirra aðgerða fari eftir fjárlagagerð og kjarasamningum en eiga þessar áskoranir sem blöstu við efnahagi þess tíma alveg jafn vel við í dag. Í ritinu birti Vísbending eining spá um verðbólgu og aðrar vísitölur fyrir árið 1984 sem „vonandi [kæmi] í tæka tíð fyrir gerð fjárhagsáætlana þess árs…“. Heildarbragur fyrsta tölublaðsins telst lýsandi fyrir útgáfuna í heild sinni alla tíð síðan. Sjónarmið Vísbendingar er nefnilega að veita heiðarlega mynd af íslensku hagkerfi, stuðla að uppbyggilegri og hreinskiptinni efnahagsumræðu ásamt því að veita upplýsingar og miðla fróðleik til atvinnulífsins og stjórnmála. Mikið vatn hefur þó runnið til sjávar á þeim tíma sem Vísbending hefur haldið til streitu sinni vikulegu útgáfu og vonast er til að lesendur fái tilfinningu fyrir þeim breytingum sem hafa átt sér stað yfir þann tíma í þessari sérútgáfu.
Stórafmæli Vísbendingar er fagnað með afmælisviðburði í húsakynnum Háskóla Íslands þann 16. júní kl. 13:00 í stofu Öskju 132. Þar eru á dagskrá pallborðsumræður …







