USD 122,2 -0,5%
EUR 143,6 -0,1%
GBP 165,9 0,1%
DKK 19,2 -0,1%
SEK 13,3 0,2%
NOK 13,2 0,5%
CHF 155,9 -0,3%
CAD 89,9 0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 7,5%
Verðbólga 5,4%
Mannfjöldi 394.530
USD 122,2 -0,5%
EUR 143,6 -0,1%
GBP 165,9 0,1%
DKK 19,2 -0,1%
SEK 13,3 0,2%
NOK 13,2 0,5%
CHF 155,9 -0,3%
CAD 89,9 0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 7,5%
Verðbólga 5,4%
Mannfjöldi 394.530
Til baka

Vöxt­ur hug­verka­iðn­að­ar eyk­ur stöð­ug­leika og fram­leiðni

– með vaxandi útflutningstekjum – en skoða verður hlut þess raunverulega vaxtar í landsframleiðslunni einnig!

SI_Algalíf
Mynd: Gummi Thor

Fjórða útflutningsstoð Íslands, hugverkaiðnaður, hefur alla burði til þess að verða sú verðmætasta í lok þessa áratugar. Við höfum það í höndum okkar hvernig mál þróast en skilvirkt og fyrirsjáanlegt starfsumhverfi mun hafa mikið um framhaldið að segja og því hefur stefna stjórnvalda og lagasetning mikil áhrif. Vöxtur útflutningstekna hugverkaiðnaðar er ekki tilviljun. Hann er afrakstur stórhuga frumkvöðla og stefnumörkunar stjórnvalda sem hafa með skattahvötum ýtt undir fjárfestingu í rannsóknum og þróun, með öðrum orðum í nýsköpun.

Útflutningstekjur hugverkaiðnaðar námu 310 milljörðum króna árið 2024 og hafa þær ríflega fimmfaldast frá því árið 2009. Hugverkaiðnaður er fjórða stoð útflutnings á Íslandi en útflutningstekjur greinarinnar námu 16% af heildarútflutningstekjum Íslands á síðasta ári.

Vöxtur hugverkaiðnaðar felur í sér aukna verðmætasköpun, aukinn efnahagslegan stöðugleika og fleiri háframleiðnistörf. Fjárfesting fyrirtækja í rannsóknum og þróun er undirstaða hugverkaiðnaðar en hugverk og sérhæfður mannauður eru helsta auðlindir greinarinnar.

Skattahvatar vegna rannsókna og þróunar helsta tækið

Skattahvatar vegna rannsókna og þróunar eru öflugasta tólið í verkfærakistu ríkisins til að stuðla að nýsköpun í atvinnulífinu. Fjárfesting í rannsóknum og þróun sem hlutfall af landsframleiðslu hefur farið úr 1,7% árið 2013 í 2,7% árið 2023. Fjárfesting í rannsóknum og þróun hefur því aukist mikið hér á landi á síðustu árum og er nú sem hlutfall af landsframleiðslu yfir meðaltali ESB-ríkja en hins vegar minna en í Bandaríkjunum. Um 75% fjárfestingar í rannsóknum og þróun kemur frá fyrirtækjum. Stjórnvöld í mörgum ríkjum heims hafa markmið um að auka fjárfestingar í nýsköpun og þar er lykilatriði að virkja einkafjármagn.

Lög um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki, sem upphaflega tóku gildi árið 2009, eiga stóran þátt í þessum mikla árangri. Skattahvatarnir voru auknir árið 2018 og aftur árið 2020. Í greiningum Samtaka iðnaðarins í kjölfar breytinga á lögunum kom skýrt fram hversu miklir kraftar voru leystir úr læðingi í atvinnulífinu með auknum skattahvötum, fyrirtæki juku fjárfestingu í nýsköpun, verðmætum háframleiðnistörfum fjölgaði og útflutningstekjur jukust í kjölfarið.

Fyrirtæki fjárfestu fyrir samtals 85,8 milljarða króna í rannsóknum og þróun á árinu 2023 en opinberir aðilar, til að mynda rannsóknastofnanir, fyrir 13 milljarða króna. Uppskeran af fjárfestingu síðustu 15 ára í rannsóknum og þróun er að koma ríkulega fram í hagkerfinu um þessar mundir.

Á síðasta ári rann yfir 90% af framlögum ríkisins vegna rannsókna og þróunar til iðnfyrirtækja sem endurspeglar þá staðreynd að nýsköpun á sér fyrst og fremst stað í iðnaði þó afrakstur hennar sé hagnýttur í flestöllum atvinnugreinum og á flestum sviðum samfélagsins.

Nú stendur yfir heildarendurskoðun á lögum um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki með sérstakri áherslu á skattahvata vegna rannsókna og þróunar. Starfshópur á vegum fjármálaráðuneytisins og háskóla-, menningar- og nýsköpunarráðuneytisins stefnir að því að skila tillögum að breytingum á kerfinu í lok þessa árs. Samtök iðnaðarins hvetja stjórnvöld til að viðhalda sterkum og fyrirsjáanlegum skattahvötum enda eru umræddir hvatar helsta tæki stjórnvalda til þess að hafa áhrif á fjárfestingu í nýsköpun sem skilar sér í aukinni verðmætasköpun, hagvexti og meiri framleiðni í hagkerfinu þegar fram í sækir.

Hugverkaiðnaður skýrt skilgreindur

Fyrirtæki í hugverkaiðnaði eiga það sameiginlegt að byggja á fjárfestingu í rannsóknum og þróun og sérhæfðum mannauði. Auðlindin í hugverkaiðnaði er þannig hugverk, mannauður og sérfræðiþekking. Hugverkaiðnaður er síður háður takmörkuðum náttúruauðlindum en aðrar greinar. Þetta skiptir máli því auðlindatakmarkanir hafa þannig ekki áhrif á möguleika greinarinnar til aukinnar verðmætasköpunar í framtíðinni.

Eftir samvinnu við Samtök iðnaðarins hóf Hagstofa Íslands á árinu 2023 að birta tölur um veltu, útflutning og fjölda starfandi í hugverkaiðnaði. Var þetta umtalsvert framfaraskref en í gögnunum mátti í fyrsta sinn finna heildstæða samantekt …

Fáðu áskrift til að lesa

Áskrift að Vísbendingu hæfir þeim sem hafa gaman að óvilhöllum greiningum og gagn af greinargóðum upplýsingum um efnahagsmál, viðskipti og nýsköpun.

Næsta grein

Mest lesið
1
Efnahagsmál

Árangur, áskoranir og lærdómur

2
Efnahagsmál

Það sem við mælum hefur áhrif á það sem við gerum

3
Efnahagsmál

Velsældarmælingar

4
Heimspeki

Innviðir og andrými hins opinbera vettvangs

5
Aðrir sálmar

Staðbundnar og alþjóðlegar aðstæður

6
Alþjóðamál

Pólland – mikilvæg evrópsk bandalagsþjóð

Aðrir sálmar 15. tbl.

Áfalla­verð­bólg­an

Reynsla, viðbrögð og lærdómar
Wawel-kastali í Krakow í Póllandi
Alþjóðamál 15. tbl.

Pól­land – mik­il­væg evr­ópsk banda­lags­þjóð

Nairobi, Kenía
Alþjóðamál 15. tbl.

Leið Afr­íku til auð­legð­ar

Jürgen Habermas
Heimspeki 14. tbl.

Inn­við­ir og and­rými hins op­in­bera vett­vangs

Saga eins mesta hugsuðar Evrópu síðustu þrjá aldarfjórðunga

Alþingi
Efnahagsmál 14. tbl.

Ár­ang­ur, áskor­an­ir og lær­dóm­ur

Áratugur frá setningu nýrra laga um opinber fjármál
Jürgen Habermas
Aðrir sálmar 14. tbl.

Stað­bundn­ar og al­þjóð­leg­ar að­stæð­ur

Staða Íslands í hinu evrópska efnahagslega umhverfi
Smiðja - Alþingi
Aðrir sálmar 13. tbl.

Vond­ur hag­vöxt­ur og góð­ur

og mismunandi afrakstur hans
mynd1
Efnahagsmál 13. tbl.

Vel­sæld­ar­mæl­ing­ar

verða enn mikilvægari í núverandi óvissuástandi