USD 121,5 0,4%
EUR 136,4 0,1%
GBP 162,0 0,4%
DKK 18,2 0,1%
SEK 12,3 0,5%
NOK 12,9 0,8%
CHF 147,3 0,3%
CAD 86,3 1,0%
JPY 0,8 0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
USD 121,5 0,4%
EUR 136,4 0,1%
GBP 162,0 0,4%
DKK 18,2 0,1%
SEK 12,3 0,5%
NOK 12,9 0,8%
CHF 147,3 0,3%
CAD 86,3 1,0%
JPY 0,8 0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
Til baka

Al­þjóða­væð­ing og fjár­mála­væð­ing

Fjármálavæðing og alþjóðavæðing haldast í hendur. Alþjóðavæðing felur í sér margar áskoranir. Ábyrgðarskylda fjármálastofnana er að veita fjármagni til góðra verkefna en ekki slæmra.

deilimynd-asgeirbrynjar

Fjármálavæðing og alþjóðavæðing haldast í hendur, bæði í sögulegu samhengi og í ljósi nýlegra viðburða. Hagkerfi heimsins varð nánast allt fyrir áhrifum af fjármálakrísunni 2008 og heimsfaraldrinum 2020.

Fjölbreytileiki fyrirtækja, stofnana og landa er lykilatriði til að viðnámsþróttur gegn áskorunum eflist. Einsleitni leiðir til veikingar og jafnvel hruns, hvort sem er varðandi líffræðileg vistkerfi eða efnahagsleg viðskiptakerfi.

Nú þegar að endurræsingu er lokið eftir stöðvun efnahagsvélar heimsins og reykurinn af höktinu í startinu fokinn er næst á dagskrá að halda taktinum stöðugum. Hægagangur er nauðsynlegur til að taka af stað að nýju án þess að ofhita eða yfirkeyra snúning efnahagsvélarinnar.

Hagvaxtarhorfur í heiminum eru mildar samkvæmt nýjustu spá Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem að kynntar voru á suðurströnd Miðjarðarhafsins í norðurhluta Afríku um síðustu helgi. Marokkó fundurinn var merkilegur fyrir margra hluta sakir en samhljómurinn þaðan snýr einna helst að því að hærri vextir virðast komnir til að vera og lægri vöxtur á við um allan heim.

Almennt er hagvöxtur álitin góður og meiri hagvöxtur betri en minni. Samt getur ofvöxtur verið af hinu slæma. Auðvelt er að reka bæði fyrirtæki og ríkissjóði þegar vöxtur er öflugur. En þá þarf að stuðla að sjálfbærni á víðtæku sviði sem grundvelli til framtíðar frekar en að pissa í skóinn sinn fyrir skammtímalausn eða skyndigróða. Þegar að herðir reynir á og afhjúpast hver standa vel.

Þar skiptir ábyrgðarskylda fjármálastofnana einnig máli. Þeirra hlutverk er að veita fjármagni til góðra verkefna en ekki slæmra. Skilgreiningin á því hvað sé gott er vissulega að lánið verði endurgreitt og með hæfilegum vöxtum sem endurspegli áhættuna. Ábyrgðin snýr einnig að því að veita ekki fjármagni til skaðlegrar starfsemi. Hámörkun hagnaðar er ekki endilega besti leiðarvísirinn sé eigendum annt um að banki lifi af og dafni til lengri tíma.

Næsta grein

Mest lesið
1
Húsnæðismál

Staða háskólamenntaðra á húsnæðismarkaði

2
Opinber fjármál

Nýtt grunnviðmið fyrir stjórnarhætti opinberra aðila

3
Umhverfi

Ef Ísland væri borg á meginlandi Evrópu

4
Efnahagsmál

Til hvers eru opinber fjármál?

5
Aðrir sálmar

Evrópa og nýi heimurinn

6
Aðrir sálmar

Framleiðni og hallarekstur

Main_building_of_the_Royal_Swedish_Academy_of_Sciences_(Kungliga_Vetenskapsakademien),_Frescati,_Norra_Djurgården,_Stockholm
Efnahagsmál 33. tbl.

Upp­skeru­há­tíð hag­fræð­inga

Stóðumst við prófið, Wassily?

Þjóð­ar­hags­leg rekstr­ar­hag­fræði

Stöndugur efnahagur og burðugur rekstur hins opinbera
Reykjavíkurhöfn
Efnahagsmál 32. tbl.

Hvert er mark­mið efna­hags­lífs­ins?

Mikilvægi skilnings á samhengi og hugtökum

Reykjavík

Staða há­skóla­mennt­aðra á hús­næð­is­mark­aði

Ný könnun Félagsvísindastofnunar HÍ bendir til þess að háskólamenntun ein og sér tryggi ekki greiða leið inn á húsnæðismarkað. Flestir eignast að lokum eigið húsnæði, en leiðin þangað virðist orðin lengri og kostnaðarsamari en áður og byggist oft á stuðningi fjölskyldu, skuldsetningu og miklu vinnuframlagi.
Stjórnarráðið
Efnahagsmál 31. tbl.

Til hvers eru op­in­ber fjár­mál?

Mikilvægi umræðunnar um tölur og orð