Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
Til baka

Gagn­semi gagn­rýn­inna grein­inga

Verðbólgan er víða farin að hjaðna en hérlendis er hún enn alltof há. Mikið hefur verið fjallað um peningamál og ástæður er orsakir verðbólgunnar hér á síðum Vísbendingar og verður líklega eitthvað áfram þar til hún er komin niður undir eða nær markmiðinu sem er 2,5% hérlendis.

deilimynd-asgeirbrynjar

Fyrir tveimur dögum birtist fundargerð peningastefnunefndar á vef Seðlabankans líkt og ávallt tveimur vikum eftir ákvörðun um meginvexti bankans. Í blaðinu birtist grein eftir annan af tveimur ytri nefndarmönnum sem varpar ljósi á ákvörðunina um að halda vöxtum bankans óbreyttum auk þess að skýra röksemdirnar fyrir hinum háu vöxtum hérlendis.

Gagnrýnin umræða og umfjöllun frá fleiri en einni hlið er kjarni góðrar fjölmiðlunar. Vert er að benda á nokkrar greinar undanfarinna vikna í þessu samhengi til að skýra myndina af verðbólgunni hérlendis sem er stærsta efnahagsáskorun okkar nú. Í lok október var í 37. tbl. fjallað um aðrar leiðir gegn verðbólgu út frá seljenda- eða hagnaðardrifinni verðbólgu. Í lok nóvember var í 41. tbl. fjallað um hvort græðgisverðbólgan væri liðin undir lok og hvort verðstýringar gætu minnkað hana. Raungögn liggja bráðlega fyrir þar sem hægt væri að rannsaka muninn á lækkun verðbólgunnar í þeim löndum sem beittu þess háttar stýringum í meira mæli en önnur og hve mikið lægri verðbólgan er þar. Loks fjallaði Gylfi Zoega í síðasta tölublaði í byrjun desember um orsakir hinnar þrálátu verðbólgu hérlendis.

Loftslagsmálefnin eru mikið rædd þessar vikurnar, nú þegar að COP28 ráðstefnan stendur yfir í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Í því ljósi er seinni greinin í þessu tölublaði um aðferðafræði og spálíkön fyrir hitastig hér á jörðinni og þróun þess. Af samanburðarrannsóknum fyrir nokkrum árum mátti lesa að um 3% vísindamanna höfðu ekki trú á því að hækkun hitastigs á jörðinni væri af mannavöldum en 97% vísindamanna sem birt höfðu greinar á því sviði í ritrýndum tímaritum töldu hækkunina vera af mannavöldum. Ekki liggur fyrir hvort fækkað hafi í öðrum hvorum hópnum síðustu ár. Ör hlýnun sjávar á yfirstandandi ári langt umfram verstu sviðsmyndir úr spálíkönum vekur þó mörgum ugg.

Næsta grein

Mest lesið
1
Atvinna

Er atvinnuleysi innflytjenda næmara fyrir hagsveiflum?

2
Aðrir sálmar

Gylfaginning

3
Loftslagsmál

París, prósentur og prófsteinninn

4
Aðrir sálmar

Af Atómstöðinni

5
Opinber fjármál

Nýtt grunnviðmið fyrir stjórnarhætti opinberra aðila

6
Umhverfi

Ef Ísland væri borg á meginlandi Evrópu

Reykjavíkurhöfn
Efnahagsmál 32. tbl.

Hvert er mark­mið efna­hags­lífs­ins?

Mikilvægi skilnings á samhengi og hugtökum
Reykjavík

Staða há­skóla­mennt­aðra á hús­næð­is­mark­aði

Ný könnun Félagsvísindastofnunar HÍ bendir til þess að háskólamenntun ein og sér tryggi ekki greiða leið inn á húsnæðismarkað. Flestir eignast að lokum eigið húsnæði, en leiðin þangað virðist orðin lengri og kostnaðarsamari en áður og byggist oft á stuðningi fjölskyldu, skuldsetningu og miklu vinnuframlagi.
Stjórnarráðið
Efnahagsmál 31. tbl.

Til hvers eru op­in­ber fjár­mál?

Mikilvægi umræðunnar um tölur og orð

Peningar
Efnahagsmál 31. tbl.

Und­ir­liggj­andi kostn­að­ar­þrýst­ing­ur

Launa-framleiðnibilið, framlegð og atvinnustig á Íslandi
AFP__20240320__economou-notitle240319_npstx__v1__HighRes__EuFlagsInBrussels

Evr­ópa og nýi heim­ur­inn

vesturheimur og vesturveldin eru hugtök til að endurskilgreina