USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
Til baka

Hug­leið­ing­ar um verð­bólgu­kenn­ing­ar

Tilraunir til að skilja og hemja verðbólguna hafa aftur og aftur mistekist.

Árlegar breytingar 2001-2022

Fyrir 40 árum var peningamagnskenningin vinsælasta kenningin um orsakir verðbólgu en hún kennir að verðbólga sé afleiðing af aukningu peningamagns umfram hagvöxt. Verðbólga væri „peningalegt fyrirbæri“ sem seðlabankar gætu komið í veg fyrir með réttri stjórnun á peningamagni. Þess vegna væri of mikil verðbólga alltaf þeim að kenna.

Þessi kenning á enn sína fylgismenn en þeim hefur fækkað. Það er ekki einu sinni ljóst hvaða peningamagn eigi að miða við. Í frægu ávarpi á þingi bandaríska hagfræðingafélagsins árið 1967 [43bcb1] hélt M. Friedman því fram að skynsamlegast væri að miða við peningamagn sem væri samtala seðla og myntar í umferð og innstæða í viðskiptabönkum. Í vaxandi hagkerfi Bandaríkjanna á þessum tíma taldi hann að lág og stöðug verðbólga væri tryggð ef þetta peningamagn jykist um 3-5% á ári. Í dag eru flestir á því að geta seðlabanka til að stjórna breytingum í tilteknu peningamagni og sambandið á milli breytinga í peningamagninu og verðbólgu séu mjög óviss og þess vegna geti seðlabankar ekki stýrt verðbólgu af þeirri nákvæmni sem Friedman gerði ráð fyrir.

Mynd 1 sýnir breytingar í grunnfé (M0) sem er samtala seðla og myntar og innstæða fjármálastofnana í seðlabanka. Þetta er ekki peningamagnið sem Friedman nefndi en sennilega það sem flestir þeirra sem hafa áhyggjur af miklum vexti peningamagns undanfarin ár miða við. Í myndinni sést að í Japan var verðhjöðnun helming tímabilsins frá árinu 2002 til ársins 2022 þrátt fyrir að grunnfé jykist nær öll árin og stundum mikið.

Árið 2013 jókst grunnfé um 46% en verðbólgan mældist -0,15%. Árið 2008 jókst grunnfé í Bandaríkjunum um 109% en verðbólgan var 3% og lækkaði svo í 2%. Á Íslandi voru sveiflurnar í grunnfénu og verðbólgunni mun meiri en í stóru löndunum. Mesta aukningin var árið 2007 ári fyrir fjármálakreppuna.

En þótt peningamagnið sé ekki nákvæmt tæki til að stýra verðbólgu eru flestir á því að það skipti máli og þótt lítið hafi gengið hjá japanska seðlabankanum að auka verðbólgu með aukningu peningamagns undanfarna áratugi muni ótæpilegur vöxtur peningamagns leiða til verðbólgu. Margir seðlabankar segjast líta til þróunar peningastærða þegar ákvarðanir eru teknar en oftast er óljóst hvað þeir lesa út úr tiltekinni þróun þeirra.

Það voru margir sem höfðu áhyggjur af því að mikil aukning peningamagns í kjölfar fjármálakreppunnar 2008 jyki verðbólgu en þær áhyggjur reyndust ástæðulausar. Kannski var ástæðan sú að þegar vextir eru mjög lágir verður kostnaðurinn við að liggja með laust fé lítill og hagkerfið í lausafjárgildru (e. liquidity trap) eins og breski hagfræðingurinn J.M.Keynes nefndi ástand þar sem aukning peningamagns hefur ekki áhrif á vexti eða aðrar stærðir í hagkerfinu. Peningasöfnun á tímum lausafjárgildru ætti að ganga til baka þegar vextir hækka.

Phillips kúrvan

Önnur kenning um orsakir verðbólgu er Phillips kúrvan, en á árinu 1958 birti Nýsjálendingurinn A.W. Phillips gögn sem sýndu að launahækkanir voru meiri þegar atvinnuleysi var lítið, niðurstaða sem auðvelt er að skýra með tilvísun í framboð og eftirspurn eftir vinnuafli. Í áðurnefndum fyrirlestri fjallar Friedman um Philips kúrvuna og bendir á að hún geti ekki verið algild heldur hljóti hún að miðast við tilteknar forsendur varðandi væntingar um verðbólgu. Það leiði síðan af Philips kúrvunni að það hljóti að vera til eitthvert tiltekið stig atvinnuleysis sem framkalli launahækkanir sem samræmist lágri og stöðugri verðbólgu. Ef atvinnuleysið er minna en jafnvægisgildið verði verðbólgan umfram verðbólguvæntingar og í kjölfarið hækki væntingarnar, en ef atvinnuleysið er meira en jafnvægisgildið lækki verðbólgan og verðbólguvæntingar. Þannig sé hægt að hafa áhrif á verðbólguna og verðbólguvæntingar í gegnum atvinnuleysið.

Á undanförnum áratugum hefur Phillips kúrvan verið alls ráðandi í greiningu hagfræðinga á verðbólgu. Oft hefur reyndar verið horft til eftirspurnarspennu á mörkuðum fyrir afurðir en ekki eingöngu á spennu á vinnumarkaði. Í þessum greiningum hættir verðbólgan að vera hreint peningalegt fyrirbæri sem seðlabankar geta stýrt með peningamagni. Til þess að stjórna verðbólgunni þurfa stjórnvöld að stilla af eftirspurnina í hagkerfinu og koma í veg fyrir mikla eftirspurnarspennu sem í samræmi við gangverk markaðarins leiðir til mikilla hækkana verðs og launa. Peningastefna seðlabanka á að geta stýrt eftirspurninni í gegnum áhrif vaxta á einkaneyslu og fjárfestingar en fræðilega væri hægt að stýra eftirspurninni með sköttum og opinberum útgjöldum. Auðvitað mætti líka blanda saman peningastefnu og stefnunni í ríkisfjármálum í glímunni við verðbólguna.

Sænski hagfræðingurinn K. Wicksell, sem fyrstur lagði til að verðlagi/verðbólgu væri stýrt með vöxtum, …

Fáðu áskrift til að lesa

Áskrift að Vísbendingu hæfir þeim sem hafa gaman að óvilhöllum greiningum og gagn af greinargóðum upplýsingum um efnahagsmál, viðskipti og nýsköpun.

Næsta grein

Mest lesið
1
Atvinna

Er atvinnuleysi innflytjenda næmara fyrir hagsveiflum?

2
Aðrir sálmar

Gylfaginning

3
Loftslagsmál

París, prósentur og prófsteinninn

4
Aðrir sálmar

Af Atómstöðinni

5
Opinber fjármál

Nýtt grunnviðmið fyrir stjórnarhætti opinberra aðila

6
Umhverfi

Ef Ísland væri borg á meginlandi Evrópu

Reykjavíkurhöfn
Efnahagsmál 32. tbl.

Hvert er mark­mið efna­hags­lífs­ins?

Mikilvægi skilnings á samhengi og hugtökum
Reykjavík

Staða há­skóla­mennt­aðra á hús­næð­is­mark­aði

Ný könnun Félagsvísindastofnunar HÍ bendir til þess að háskólamenntun ein og sér tryggi ekki greiða leið inn á húsnæðismarkað. Flestir eignast að lokum eigið húsnæði, en leiðin þangað virðist orðin lengri og kostnaðarsamari en áður og byggist oft á stuðningi fjölskyldu, skuldsetningu og miklu vinnuframlagi.
Peningar
Efnahagsmál 31. tbl.

Und­ir­liggj­andi kostn­að­ar­þrýst­ing­ur

Launa-framleiðnibilið, framlegð og atvinnustig á Íslandi

Stjórnarráðið
Efnahagsmál 31. tbl.

Til hvers eru op­in­ber fjár­mál?

Mikilvægi umræðunnar um tölur og orð
AFP__20240320__economou-notitle240319_npstx__v1__HighRes__EuFlagsInBrussels

Evr­ópa og nýi heim­ur­inn

vesturheimur og vesturveldin eru hugtök til að endurskilgreina