USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
Til baka

Hver er eðli­leg arð­semi banka?

Bankar

Nýlega birti Menningar- og viðskiptaráðuneytið skýrslu sem ber heitið Gjaldtaka og arðsemi viðskiptabankanna (Menningar- og viðskiptaráðuneytið, 2023). Hún er ítarleg, 90 blaðsíður auk myndarlegs viðauka. Ýmislegt áhugavert kemur fram í skýrslunni. Búið er að boða aðra skýrslu og jafnvel árlegar skýrslur í svipuðum dúr. Hér ætla ég að benda á nokkur atriði sem bæta má við í framtíðarskýrslum til að veita gleggri mynd á arðsemina og samanburð á milli banka.

Arðsemi eigin fjár

Í kafla 4 er fjallað um afkomu og arðsemi bankanna. Fram kemur á síðu 49 að hagnaður bankanna hafi verið miklu hærri árin 2021 og 2022 heldur en á árunum á undan. Tekið er fram að árin 2020 og 2021 hafi litast töluvert af áhrifum faraldursins. Stórar varúðarfærslur voru gjaldfærðar í upphafi COVID-19 sem voru að verulegum hluta bakfærðar árið 2021. Hér hefði einnig mátt bæta við að minni hagnaður árin áður litaðist af töluverðum afskriftum vegna fyrirtækjaútlána árin 2018 og 2019. Hagnaður Arion banka var til að mynda rétt yfir núllinu árið 2019 vegna töluverðra afskrifta fyrirtækjaútlána.

Á næstu síðu kemur í ljós að arðsemi reglulegra tekna á ellefu ára tímabili var afleit, eða 7,2% að meðaltali. Ekki kemur fram að meðalkrafa á ríkisbréfum á gjalddaga árið 2031 var 5,4% miðað við ávöxtunarkröfu í upphafi hvers árs. Umframávöxtunin á eigið fé bankanna var því innan við 2% árlega umfram áhættulausa vexti sem fengust af ríkisbréfum. Fram kemur að það voru einskiptisliðir sem héldu henni uppi árin 2012-2017. Eftir það syrti í álinn. Arðsemi af reglulegri starfsemi mjakaðist upp en einskiptisliðir drógu hana niður árin 2018-2020.

Skýrslan dregur fram hversu ávöxtunarkrafan sem fjármálafyrirtækin sjálf gera til rekstrar síns er breytileg á milli banka og jafnvel ófyrirsjáanleg. Landsbankinn, til dæmis, setti fram almenn markmið árið 2010 þar sem gert var ráð fyrir 7% arðsemi af reglulegum rekstri umfram áhættulausa vexti, sem miðaðir eru við 10 ára óverðtryggð ríkisbréf. Í því samhengi er miðað við 12% eiginfjárhlutfall en sé eiginfjárhlutfallið 16% lækkar krafan um umframávöxtun úr 7% niður í 5,25%. Þetta skýra arðsemismarkmið er þó ekki lengur til staðar því fram kemur á síðu 51 að í nýlegum ársuppgjörum bankans sé hún um eða yfir 10%. Landsbankinn skautar því orðið fram hjá arðsemiskröfum sem tengjast vaxtastigi hverju sinni.

Íslandsbanki kom árið 2018 með arðsemiskröfu sem var 5% umfram skammtímavöxtum en ekki langtímavöxtum eins og Landsbankinn gerði

Íslandsbanki kom árið 2018 með arðsemiskröfu sem var 5% umfram þar sem gert var ráð fyrir 7% arðsemi af reglulegum rekstri umfram áhættulausa vexti, skammtímavexti en ekki langtímavexti eins og Landsbankinn gerði. Þessi markmið eru nú ekki lengur tölusett heldur einungis miðuð við eitthvað á þá leið að ávöxtunin sé viðunandi fyrir hluthafa. Stjórn Arion banka setti sér 13% arðsemismarkmið árið 2021 en áður var það 10%.

Segja má að þessi lítt skipulagða framsetning á arðsemismarkmiðum valdi ruglingi hjá flestum. Eðlilegt væri að íslenskir bankar kæmu fram með skýra stefnu sem tæki tillit til annaðhvort skammtíma- eða langtíma áhættulausra vaxta.

Því má við bæta að almenn þumalputtaregla er að ávöxtunarkrafa eigin fjár fyrirtækja í meðaláhættusömum rekstri er 5% umfram skilgreiningu á áhættulausum vöxtum. Þessi regla er þó ekki algild og sitt sýnist hverjum hver hún ætti að vera og auk þess er oft óljóst, eins og ofangreind dæmi sýna, hvort miða eigi við lang- eða skammtíma vexti.

Norrænn samanburður á arðsemi banka

Síðar í skýrslunni, á blaðsíðu 69, er erlendur samanburður gerður á arðsemi íslensku bankanna, norrænna banka og alþjóðlegra banka árið 2022. Fram kemur að arðsemin var næsthæst hjá íslensku bönkunum. Þó munaði litlu. Arðsemin var 10,7% hjá íslensku bönkunum, 10,5% hjá norskum bönkum og 10,0% hjá þeim sem skýrsluhöfundar skilgreina sem svipaða norræna banka. Lægsta arðsemin var í Finnlandi, eða 7,8%. Hér er aftur á móti einungis hálf sagan sögð.

Sé litið til skammtímavaxta (OECD, e.d.b) þá voru þeir um það bil 1,5% lægri í Noregi og 3% lægri á hinum Norðurlöndunum í ársbyrjun 2022. Eðlileg ávöxtunarkrafa íslensku bankanna það árið hefði því átt að vera hærri sem samsvarar þeirri gerð markmiða sem Íslandsbanki setti sér árið 2018. Samkvæmt þessari nálgun var arðsemi íslensku bankanna töluvert lakari en hjá frændþjóðum okkar árið 2022 að Finnlandi undanskildu, en þar var arðsemin svipuð.

Sé litið til langtímavaxta (OECD, e.d.a) þá blasir við enn ýktari mynd. Langtímavextir hérlendis voru í ársbyrjun 2022 um …

Fáðu áskrift til að lesa

Áskrift að Vísbendingu hæfir þeim sem hafa gaman að óvilhöllum greiningum og gagn af greinargóðum upplýsingum um efnahagsmál, viðskipti og nýsköpun.

Næsta grein

Mest lesið
1
Atvinna

Er atvinnuleysi innflytjenda næmara fyrir hagsveiflum?

2
Aðrir sálmar

Gylfaginning

3
Loftslagsmál

París, prósentur og prófsteinninn

4
Aðrir sálmar

Af Atómstöðinni

5
Opinber fjármál

Nýtt grunnviðmið fyrir stjórnarhætti opinberra aðila

6
Umhverfi

Ef Ísland væri borg á meginlandi Evrópu

Reykjavíkurhöfn
Efnahagsmál 32. tbl.

Hvert er mark­mið efna­hags­lífs­ins?

Mikilvægi skilnings á samhengi og hugtökum
Reykjavík

Staða há­skóla­mennt­aðra á hús­næð­is­mark­aði

Ný könnun Félagsvísindastofnunar HÍ bendir til þess að háskólamenntun ein og sér tryggi ekki greiða leið inn á húsnæðismarkað. Flestir eignast að lokum eigið húsnæði, en leiðin þangað virðist orðin lengri og kostnaðarsamari en áður og byggist oft á stuðningi fjölskyldu, skuldsetningu og miklu vinnuframlagi.
Peningar
Efnahagsmál 31. tbl.

Und­ir­liggj­andi kostn­að­ar­þrýst­ing­ur

Launa-framleiðnibilið, framlegð og atvinnustig á Íslandi

Stjórnarráðið
Efnahagsmál 31. tbl.

Til hvers eru op­in­ber fjár­mál?

Mikilvægi umræðunnar um tölur og orð
AFP__20240320__economou-notitle240319_npstx__v1__HighRes__EuFlagsInBrussels

Evr­ópa og nýi heim­ur­inn

vesturheimur og vesturveldin eru hugtök til að endurskilgreina