USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
Til baka

Sjóð­ir og áföll - II

Síðari grein um þjóðarsjóðshugmyndir birtist hér í samhengi við Reykjaneseldana og í víðtækara ljósi miðað við áfallaþol og efnahagslegar stærðir.

_DSF0797 (1)
Mynd: Golli

Mörg ríki eiga nú digra opinbera sjóði, oft kallaða þjóðarsjóði (e. sovereign wealth fund) sem þau hafa safnað í með ýmsum hætti. Réttlæting slíkrar söfnunar er mismunandi. Sjóðsöfnunin felur nánast sjálfkrafa í sér að minnu er skilað af tekjum hins opinbera til þegnanna á líðandi stund en á móti kemur að þeir, eða jafnvel afkomendur þeirra, eiga von á því að fá eitthvað að launum, t.d. betri þjónustu og/eða lægri skatta, einhvern tíma síðar.

Norski olíusjóðurinn svokallaði er einn þekktasti sjóðurinn og sá stærsti, með eignir að andvirði um 1.500 milljarða dollara. Þjóðarsjóður Kína er litlu minni en Kínverjar eiga raunar fleiri slíka og sá sem telst tilheyra Hong Kong er sá þriðji stærsti í heimi. Þetta eru háar fjárhæðir og á norski sjóðurinn um 1,5% allra skráðra hlutabréfa í heimi. Upphæðin myndi þó ekki duga nema til að kaupa um helminginn af annað hvort Apple eða Microsoft, sem endurspeglar hve stærðardreifing stærstu fyrirtækja heims er orðin skekkt.

Rökin fyrir söfnun norska olíusjóðsins á sínum tíma voru fyrst og fremst að tryggja að miklar en tímabundnar tekjur Norðmanna af nýtingu olíu- og gasauðlinda nýttust íbúum landsins varanlega en rynnu ekki bara til þeirra kynslóða sem voru uppi á meðan eldsneytinu var dælt úr jörðu. Í Kína og mörgum fleiri löndum eru slíkir sjóðir hugsaðir allt öðru vísi, oft er fé fyrst og fremst safnað til að hægt sé að fjárfesta í ýmiss konar uppbyggingu sem ætlað er að örva hagvöxt og stuðla þannig að betri lífskjörum í framtíðinni.

Ólík rök fyrir þjóðarsjóði

Athyglisvert er að það þýðir m.a. að lönd sem eru tiltöluleg fátæk, eins og Kína er enn og Singapúr var þegar það byrjaði sína söfnun, hafa þannig haldið niðri neyslu um lengri eða skemmri tíma, með skattlagningu eða skyldusparnaði og lofað þegnunum á móti betri tíð síðar. Sjóðirnir hafa þannig fjármagnað uppbyggingu heimafyrir og erlenda fjárfestingu. Norðmenn skipta sínum sjóði í tvennt, annar fjárfestir eingöngu utan Noregs (Statens pensjonsfond Utland) en hinn í Noregi og raunar líka hinum Norðurlöndunum (Statens pensjonsfond Norge), þó ekki Íslandi. Sá síðari er miklu minni og fær nú ekki aðrar tekjur en þær sem ávöxtun eigna skilar.

Norsku þjóðarsjóðirnir tveir eru báðir kenndir við lífeyri á norsku en þeir eru þó ekki lífeyrissjóðir í hefðbundnum skilningi. Tilvonandi lífeyrisþegar í Noregi eiga engin ákveðin réttindi eða aðrar kröfur á sjóðina. Sjóðirnir teljast einfaldlega eignir ríkisins og ákvarðanir um greiðslur inn í eða út úr þeim eru teknar á vettvangi stjórnmála.

Íslensku lífeyrissjóðirnir eru ekki eign ríkisins en efnahagsáhrif þeirra eru þó um margt svipuð og þjóðarsjóða. Lífeyriskerfið byggir að mestu á skyldusparnaði og fjárfestingar lífeyrissjóðanna eru svipaðar og tíðkast hjá þjóðarsjóðum. Íslenskur verðbréfamarkaður náði engu flugi fyrr en uppbygging lífeyrissjóðanna hófst. Með henni kom framboð á sparifé og spurn eftir innlendum verðbréfum, fyrst skuldabréfum og síðar hlutabréfum. Það ýtti undir fjárfestingu og hagvöxt innanlands. Þegar sjóðirnir fengu loks heimild til að fjárfesta erlendis, með EES samningnum, hófst jafnframt uppbygging erlends eignasafns sem nú er langstærsta erlenda eign íslenskra aðila. Tilvist lífeyrissjóðakerfis sem byggir á sjóðsöfnun dregur úr þörfinni á innlendum þjóðarsjóði. Í löndum þar sem lífeyriskerfið reiðir sig að verulegu leyti á gegnumstreymi í gegnum ríkissjóð er mun meiri þörf fyrir þjóðarsjóð.

Á lífeyrissjóðum og þjóðarsjóðum er þó sá mikilvægi munur að lífeyrissjóðum ber engin skylda til að koma ríkissjóði til bjargar lendi hann í vanda. Lífeyrissjóðirnir eiga ekki heldur að koma öðrum innlendum aðilum til hjálpar. Þeir hafa einfalt hlutverk, að greiða út lífeyri. Stuðningur við önnur verkefni, hversu brýn eða lofsamleg sem þau kunna að vera, brýtur gegn stjórnarskrárvörðum eignarréttindum sjóðfélaga.

Íslensku lífeyrissjóðirnir eru ekki eign ríkisins en efnahagsáhrif þeirra eru þó um margt svipuð og þjóðarsjóða

Áfallaþol og styrkur sjóða

Þjóðarsjóðir geta hins vegar hjálpað löndunum eða ríkissjóðum þeirra að takast á við tímabundin áföll þótt það sé yfirleitt ekki helsta markmið þeirra. Hugmyndin um þjóðarsjóð fyrir Ísland hefur fyrst og fremst verið rökstudd með vísan til þess að sjóðurinn myndi koma að góðum notum í bráðum efnahagsvanda. Sá vandi gæti verið vegna náttúruhamfara en einnig af öðrum orsökum.

Þessi rökstuðningur er góðra gjalda verður. Það er auðvitað gott að eiga varasjóð þegar í harðbakkann slær. Það býr til svigrúm til að hafa útgjöld meiri en tekjur í skemmri eða lengri tíma. Lántaka getur líka búið til slíkt svigrúm en það getur verið hættulegt að reiða sig á aðgengi að lánsfé því lánalínur geta þornað í krísu. Íslenska ríkið reyndi að taka lán árið 2008 til að bjarga bankakerfi sem var að hrynja en kom að lokuðum dyrum hjá lánardrottnum. Sem betur fer, vitum við nú.

Ólíklegt er að innlendur lánamarkaður lokist íslenska ríkinu þótt sá erlendi geti frosið. Innanlands verður hægt að fá krónur að láni. Það skiptir máli en leysir ekki vandann ef fjármagna þarf mikinn viðskiptahalla, t.d. ef útflutningsmarkaðir lokast eða flytja þarf mikið af aðföngum til landsins. Til þess þarf gjaldeyri.

Gjaldeyrisforðasjóður

Íslenska ríkið á vissulega gjaldeyrisforða, þ.e. þann sem Seðlabankinn býr yfir. Seðlabankinn átti um síðustu áramót 795 milljarða króna eða um fimm milljarða evra í gjaldeyri. Það telst …

Fáðu áskrift til að lesa

Áskrift að Vísbendingu hæfir þeim sem hafa gaman að óvilhöllum greiningum og gagn af greinargóðum upplýsingum um efnahagsmál, viðskipti og nýsköpun.

Næsta grein

Mest lesið
1
Atvinna

Er atvinnuleysi innflytjenda næmara fyrir hagsveiflum?

2
Aðrir sálmar

Gylfaginning

3
Loftslagsmál

París, prósentur og prófsteinninn

4
Aðrir sálmar

Af Atómstöðinni

5
Opinber fjármál

Nýtt grunnviðmið fyrir stjórnarhætti opinberra aðila

6
Umhverfi

Ef Ísland væri borg á meginlandi Evrópu

Reykjavíkurhöfn
Efnahagsmál 32. tbl.

Hvert er mark­mið efna­hags­lífs­ins?

Mikilvægi skilnings á samhengi og hugtökum
Reykjavík

Staða há­skóla­mennt­aðra á hús­næð­is­mark­aði

Ný könnun Félagsvísindastofnunar HÍ bendir til þess að háskólamenntun ein og sér tryggi ekki greiða leið inn á húsnæðismarkað. Flestir eignast að lokum eigið húsnæði, en leiðin þangað virðist orðin lengri og kostnaðarsamari en áður og byggist oft á stuðningi fjölskyldu, skuldsetningu og miklu vinnuframlagi.

Stjórnarráðið
Efnahagsmál 31. tbl.

Til hvers eru op­in­ber fjár­mál?

Mikilvægi umræðunnar um tölur og orð
Peningar
Efnahagsmál 31. tbl.

Und­ir­liggj­andi kostn­að­ar­þrýst­ing­ur

Launa-framleiðnibilið, framlegð og atvinnustig á Íslandi
AFP__20240320__economou-notitle240319_npstx__v1__HighRes__EuFlagsInBrussels

Evr­ópa og nýi heim­ur­inn

vesturheimur og vesturveldin eru hugtök til að endurskilgreina