USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
Til baka

Vaxta­á­kvörð­un og verð­bólgu­horf­ur

Ísland er viðkvæmara fyrir verðbólgu en mörg önnur lönd og það kallar á hærri vexti.

Seðlabankinn

Peningastefnunefnd ákvað á vaxtaákvörðunarfundi sínum í ágúst 2023 að hækka vexti um 0,5 prósentur. Við það hækkuðu meginvextir bankans í 9,25%. Þótt vísbendingar væru um að hægt hafi á vexti innlendrar eftirspurnar, sem ætti að draga úr verðbólguþrýstingi, taldi nefndin samt sem áður nauðsynlegt að herða taumhald peningastefnunnar. Áfram er spenna í þjóðarbúinu, sérstaklega á vinnumarkaði og verðbólguvæntingar eru vel yfir 2,5% verðbólgumarkmiði Seðlabankans.

Verðbólguvæntingar

Íslenska hagkerfið tók fljótt við sér í kjölfar heimsfaraldursins. Innlend eftirspurn jókst hratt sem ásamt alþjóðlegum áhrifum leiddi til aukinnar verðbólgu á Íslandi. Með hækkandi verðbólgumælingum jukust bæði skammtíma- og langtímaverðbólguvæntingar.

Kjölfesta verðbólguvæntinga er jafnan veikari í löndum eins og Íslandi sem hafa sögu um mikla verðbólgu. Verðbólguvæntingar geta þá hækkað hratt þegar verðbólga eykst. Hækkun verðbólguvæntinga getur haft í för með sér launahækkanir umfram langtíma framleiðnivöxt og að fyrirtæki hækki verð þrátt fyrir að verða ekki fyrir beinum kostnaðarauka. Kröftug innlend eftirspurn og lítið atvinnuleysi ýta undir þá framvindu. Háar verðbólguvæntingar geta því leitt til svokallaðra seinni umferðar áhrifa og afleiðingin er meiri verðbólga, sem rýrir virði peninga og minnkar kaupmátt launa. Mikilvægt er fyrir seðlabanka að bregðast við þessu ástandi með hækkun vaxta.

Þar sem Ísland á sér sögu um mikla verðbólgu, þarf Seðlabanki Íslands að bregðast fyrr við verðbólguþrýstingi með því að hækka vexti, hækka vexti meira og halda vöxtum á hærra stigi lengur en seðlabankar í löndum sem hafa sögu um minni verðbólgu. Til skemmri tíma litið geta áhrifin á efnahagsumsvif verið meiri en hefði þurft ef kjölfesta verðbólguvæntinga væri sterk en ábatinn ætti að skila sér í minni verðbólgu en ella. Til lengri tíma litið má því búast við meiri stöðugleika og aukinni velferð þar sem verðbólga og verðbólguvæntingar eru lægri en annars hefði verið.

Verðbólga enn á breiðum grunni

Nýleg þróun vísitölu neysluverðs sýnir að mæld verðbólga er byrjuð að hjaðna. Hún er þó ennþá vel yfir verðbólgumarkmiði bankans og hækkanir eru á breiðum grunni. Nýjasta mæling sem lá fyrir við vaxtaákvörðun sýnir að enn hækkar um 80% af neyslukörfu vísitölu neysluverðs meira en 5% á milli ára. Jákvætt er þó að hlutfall vara sem hefur hækkað um meira en 10% er tekið að lækka þótt það hafi að mestu gerst með því að hlutur vara sem hækkar á bilinu 5-10% jókst. Hækkanir eru því enn of miklar og almennar til að samrýmast verðbólgumarkmiði bankans.

Við mat á verðbólguþrýstingi er gagnlegt að líta til mælinga um undirliggjandi verðbólgu. Þá er horft fram hjá tímabundnum þáttum, eins og t.d. verðhækkunum vegna uppskerubrests eða stríðs, sem peningastefnan hefur ekki áhrif á. Vert er þó að nefna að tímabundnir atburðir geta haft áhrif á almenna verðbólgu í gegnum seinni umferðar áhrif ef kjölfesta verðbólguvæntinga er brostin.

Undirliggjandi verðbólga hefur hjaðnað hægar en mæld verðbólga. Samkvæmt meðaltali mælinga var hún 6,7% í júlí samanborið við 7,3% í maí og júní. Hún er því enn mikil sem bendir til verðbólguþrýstings í hagkerfinu.

Innlendar verðhækkanir vöru og þjónustu, sem tilkomnar eru vegna kröftugrar innlendrar eftirspurnar, hafa reynst þrálátar og eru enn að aukast. Húsnæðisverð hefur þó lækkað skart undanfarið og einnig hefur hægt nokkuð á innfluttum verðhækkunum. Fræðin og reynslan sýna að vaxtahækkanir eru mikilvægt tæki til að hægja á eftirspurnardrifinni verðbólgu.

Gengið og innflutt verðbólga

Vaxtahækkanir geta einnig haft óbein áhrif á innflutta verðbólgu. Vaxtamunur við útlönd styður við gengi íslensku krónunnar. Hvati er fyrir markaðsaðila að halda fjármagni í íslenskum krónum þegar ávöxtun eykst á Íslandi. Þegar gengið styrkist þá verða innfluttar vörur ódýrari í krónum talið. Ef litið er til viðskiptalanda okkar þá hefur hækkun vöruverðs hjaðnað. Í ofanálag hefur orku- og matvælaverð lækkað á alþjóðavísu. Því hefur hægt verulega á hækkun innflutningsverðs í …

Fáðu áskrift til að lesa

Áskrift að Vísbendingu hæfir þeim sem hafa gaman að óvilhöllum greiningum og gagn af greinargóðum upplýsingum um efnahagsmál, viðskipti og nýsköpun.

Næsta grein

Mest lesið
1
Atvinna

Er atvinnuleysi innflytjenda næmara fyrir hagsveiflum?

2
Aðrir sálmar

Gylfaginning

3
Loftslagsmál

París, prósentur og prófsteinninn

4
Aðrir sálmar

Af Atómstöðinni

5
Opinber fjármál

Nýtt grunnviðmið fyrir stjórnarhætti opinberra aðila

6
Umhverfi

Ef Ísland væri borg á meginlandi Evrópu

Reykjavíkurhöfn
Efnahagsmál 32. tbl.

Hvert er mark­mið efna­hags­lífs­ins?

Mikilvægi skilnings á samhengi og hugtökum
Reykjavík

Staða há­skóla­mennt­aðra á hús­næð­is­mark­aði

Ný könnun Félagsvísindastofnunar HÍ bendir til þess að háskólamenntun ein og sér tryggi ekki greiða leið inn á húsnæðismarkað. Flestir eignast að lokum eigið húsnæði, en leiðin þangað virðist orðin lengri og kostnaðarsamari en áður og byggist oft á stuðningi fjölskyldu, skuldsetningu og miklu vinnuframlagi.
Peningar
Efnahagsmál 31. tbl.

Und­ir­liggj­andi kostn­að­ar­þrýst­ing­ur

Launa-framleiðnibilið, framlegð og atvinnustig á Íslandi

Stjórnarráðið
Efnahagsmál 31. tbl.

Til hvers eru op­in­ber fjár­mál?

Mikilvægi umræðunnar um tölur og orð
AFP__20240320__economou-notitle240319_npstx__v1__HighRes__EuFlagsInBrussels

Evr­ópa og nýi heim­ur­inn

vesturheimur og vesturveldin eru hugtök til að endurskilgreina