USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
Til baka

Verð­bólgu­hjöðn­un og hag­vaxtar­ólga

Framkvæmdir
Mynd: Davíð Þór

Nú fer verðbólgan hratt hjaðnandi í Evrópu, hún er komin niður fyrir 3% í nokkrum suðlægum löndum álfunnar svo sem á Spáni1 og Grikklandi. Evrópski seðlabankinn hækkaði samt stýrivextina um fjórðung úr prósentu upp í 3,5% í síðustu viku og eru þeir orðnir þeir hæstu þar í 22 ár.2

Hagvöxtur á evrusvæðinu var einna hæstur í Grikklandi nýverið án þess að verðbólgan sé æðandi upp hans vegna. Uppbygging á neðanjarðarlestarkerfi í höfuðborginni Aþenu og framkvæmdir við nýjan alþjóðaflugvöll á eyjunni Krít – sem tvöfalda mun ferðamannastrauminn þar úr 8 í 16 milljónir ferðamanna – valda þó ekki beint hagvexti til vandræða eða verðbólgu með lífskjaraskerðingu. Ólíkt því sem virðist á Íslandi! Þó er eyjan Krít einungis með 250 þúsundum fleiri íbúa en Ísland.

Verðbólgumarkmið og hagvöxtur

Verðbólga Bandaríkjanna fer einnig lækkandi. Hún er komin í um 4% og í síðustu viku hætti seðlabankinn þar að hækka stýrivexti en gaf samt til kynna að þeir gætu farið aðeins upp síðar á árinu, erfiðasti hluti baráttunnar við verðbólguna væri þó búinn.3 Stýrivextir í Bandaríkjunum eru nú um og rétt yfir 5% og raunvextir því orðnir jákvæðir líkt og í áðurnefndum löndum evrusvæðisins.

Almennt gildir það þó ekki enn, því verðbólgan á evrusvæðinu öllu er enn um 6% þegar á heildina er litið, viss lönd með mikla verðbólgu draga meðaltalið augljóslega upp. Raunvextir í Evrópu eru því enn víða neikvæðir. Ekki er búist við því að tveggja prósenta verðbólgumarkmið náist fyrr en eftir árið 2025 í Evrópu4 en mögulega undir lok næsta árs í Bandaríkjunum.

Hagvöxturinn sem núna æðir hraðar áfram á Íslandi en flestum öðrum löndum virðist til mikilla vandræða víða í íslenska hagkerfinu og þrátt fyrir að stýrivextir hafi verið hækkaðir hér fyrr en í öðrum löndum, og séu orðnir mun og jafnvel margfalt hærri en víða í nágrenninu, þá eru ekki enn farin að birtast merki um lækkun verðbólgunnar hér. Það er mjög merkilegt. Þetta sérkennilega tilfelli verður ekki greint nákvæmlega í þessari grein, en frekar er áhersla lögð á að draga fram hið alþjóðlega sjónarhorn á verðbólguna og hjöðnun hennar í heiminum.

Öll lönd urðu að kljást við heimsfaraldurinn og allflest við verðbólgu eftir hann. Örfá lönd eins og Ísland sluppu við lífskjarakrísu vegna orkuverðshækkana í beinu framhaldi stríðsins. Áhugaverð hugaræfing er að velta því fyrir sér hvernig ástandið væri ef að Ísland mældi orkuverð, sérstaklega vegna upphitunarkostnaðar, öðruvísi í sínum vísitölumælingum heldur en önnur lönd – líkt og á við um húsnæðisfjármögnunarkostnaðinn.5

Rétt er að minna á að hagvöxtur og verðbólga eru bæði mælikvarðar sem mældir eru eftir á og miðast við árið á undan. Orsakasamband þar á milli er því ekki alveg öruggt þó finna megi fylgni. Það hvort að verðbólguhjöðnun dragi úr hagvexti eða öfugt eða bæði er efni í allt aðra umræðu.

Hefðbundin hagfræði og jaðarsett

Vinsælt virðist í íslenskri efnahagsumræðu að ofureinfalda verðbólgu skýringar og vísa í einhver grundvallareðlisfræðileg lögmál íslenskrar hagfræðikennslu um vandann og lausn hans. Þannig er gefið í skyn að verðbólgan lagist við það að almenningur eða launþegar nái að skilja nauðsyn kjaraskerðingar sinnar þrátt fyrir hagvöxt og verðhækkanir á lífsnauðsynjum. Umræða um að verðbólgan hafi myndast í síðustu kjarasamningum eða hún geti lækkað við næstu samninga um raunlaunalækkun stangast mjög á við alþjóðlega umræðu um verðbólguna. Þar er skortur á vinnuafli eftir heimsfaraldur og alvarlegar afleiðingar lífskjarakrísunnar af völdum verðhækkana talin eðlileg ástæða launakostnaðarhækkana, sem í raun eru ákaflega litlar ef þær þá ná að halda í við verðbólguna.

Fyrrverandi seðlabankastjórnendur6 hafa líka haldið áfram að telja verðbólguna vera tilkomna vegna of mikilla ríkisútgjalda í faraldri og of síðbúinna stýrivaxtahækkana. Þar er samt alls ekki víst heldur að um beint orsakasamband sé að ræða þó að fylgnin við gamlar kenningar geti verið auðveld leið til að finna skýringar. Íslenska fordæmið er að minnsta kosti orðið lélegt verðlaunaefni fyrir árangur af því að hækka fyrst, hraðast og mest …

Fáðu áskrift til að lesa

Áskrift að Vísbendingu hæfir þeim sem hafa gaman að óvilhöllum greiningum og gagn af greinargóðum upplýsingum um efnahagsmál, viðskipti og nýsköpun.

Næsta grein

Mest lesið
1
Atvinna

Er atvinnuleysi innflytjenda næmara fyrir hagsveiflum?

2
Aðrir sálmar

Gylfaginning

3
Loftslagsmál

París, prósentur og prófsteinninn

4
Aðrir sálmar

Af Atómstöðinni

5
Opinber fjármál

Nýtt grunnviðmið fyrir stjórnarhætti opinberra aðila

6
Umhverfi

Ef Ísland væri borg á meginlandi Evrópu

Reykjavíkurhöfn
Efnahagsmál 32. tbl.

Hvert er mark­mið efna­hags­lífs­ins?

Mikilvægi skilnings á samhengi og hugtökum
Reykjavík

Staða há­skóla­mennt­aðra á hús­næð­is­mark­aði

Ný könnun Félagsvísindastofnunar HÍ bendir til þess að háskólamenntun ein og sér tryggi ekki greiða leið inn á húsnæðismarkað. Flestir eignast að lokum eigið húsnæði, en leiðin þangað virðist orðin lengri og kostnaðarsamari en áður og byggist oft á stuðningi fjölskyldu, skuldsetningu og miklu vinnuframlagi.
Stjórnarráðið
Efnahagsmál 31. tbl.

Til hvers eru op­in­ber fjár­mál?

Mikilvægi umræðunnar um tölur og orð

Peningar
Efnahagsmál 31. tbl.

Und­ir­liggj­andi kostn­að­ar­þrýst­ing­ur

Launa-framleiðnibilið, framlegð og atvinnustig á Íslandi
AFP__20240320__economou-notitle240319_npstx__v1__HighRes__EuFlagsInBrussels

Evr­ópa og nýi heim­ur­inn

vesturheimur og vesturveldin eru hugtök til að endurskilgreina