Það er sjaldgæft að út komi á íslensku eins yfirgripsmikið fræðirit og bók Jóhanns Páls Árnasonar Austur, vestur og aftur heim – sem Hið íslenska bókmennafélag gaf út fyrir jólin – og tekin er til vandlegrar umfjöllunar í Vísbendingu vikunnar.
Greinar Jóhanns Páls í ritinu um samfélagsheimspeki og siðmenningargreiningu byggja á áratuga löngum alþjóðlegum rannsóknum hans og eiga mikilvægt erindi inn í þjóðfélagsumræðuna nú um stundir. Sérstaklega sé tekið mið af þeim margbreytileika og flækjum sem yfirstandandi krísur nútímans færa okkur í hverri viku um þessar mundir.
Hér á síðum Vísbendingar fjöllum við reglulega um bækur sem eiga brýnt erindi. Bæði erlendar bækur hagfræðinga eins og mátti lesa í tveimur greinum á síðustu vikum um tækniþróun og kapítalisma. Eins hafa greinar á síðasta ári fjallað um valdar íslenskar bækur um skipulagsmál og sögu nýsköpunar. Þá er í Heimildinni fjallað um bækur með hefðbundinni gagnrýni.
Forsendur lýðræðisins, grundvöllur réttarríkisins og horfurnar í alþjóðamálum með tilliti til siðmenningar samfélaga verða ofarlega í huga á tímum sem þessum – sem við nú lifum.
Staðan varðandi Atlantshafsbandalagið og sú fjölþætta krísa sem vofir yfir varnarmálum í Evrópu verður hávær í utanríkismálum næstu mánuði, enda lýsti væntanlegur nýr kanslari Þýskalands eftir kosningaúrslitin um helgina, því yfir að ekki væri víst að Nató yrði ennþá til í sumar. Útgjöld til varnarmála munu enda hafa áhrif á alla umræðu um opinber fjármál í ríkjum álfunnar þetta árið.
Uppbyggilegt var að heyra nú í upphafi vikunnar að bæði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra töluðu opinskátt um hve alvarlegt ástandið er, í ræðum frá Genf og Kiev. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrum utanríkisráðherra setti tóninn í viðtali í áramótablaðinu hér og nú birtist okkur skýrt að heimsmálin eru að breytast enn hraðar en nokkru sinni áður á öllum lýðveldistímanum.








