USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
Til baka

Vörð­ur á veg­in­um til hag­sæld­ar

Síðustu fjörutíu ár hafa verið eitt mesta umbreytingarskeið í íslensku efnahagsumhverfi síðan land byggðist.

WhiteandKeynes01
Frá ráðstefnu Bretton Woods 1944. Harry Dexter White til vinstri og John Maynard Keynes til hægri.

Síðustu fjörutíu ár hafa verið eitt mesta umbreytingarskeið í íslensku efnahagsumhverfi síðan land byggðist. Þar eru þó nokkrir viðburðir sem marka leiðina þangað og mikilvæga vendipunkta á því tímaskeiði og í raun nútímavæðingu íslensks samfélags. Þó auðvitað sé ekki hægt að gera lítið úr fullveldi, sjálfstæði og útvíkkun landhelgi þá mun ég í þessari grein færa rök fyrir því að viðburðir á þeim tíma sem rúmast innan útgáfutímabils vikuritsins Vísbendingar séu ekki síður jafn mikilvægir.

Í heimssögunni voru miklir efnahagslegir umbrotatímar þegar að Vísbending hóf göngu sína. Nokkrum árum áður féll sundur fastgengisstefnan og gullfótur helstu gjaldmiðla heims. Örfá ár voru líka þar til kom að falli Berlínarmúrsins sem fól í sér mesta samruna innan Evrópu, við sameiningu ekki aðeins tveggja hluta Þýskalands heldur austur og vestur hluta álfunnar. Sú samþætting var á mestan hátt efnahagsleg þó hún hafi einnig verið pólitískur stórviðburður.

Samningar eru grundvöllur allra viðskipta. Alþjóðasamningar hafa mikið að segja um efnahag og viðskipti í heiminum. Margþátta samningar af þeim toga eru meginþræðir þess efnahagspólitíska umbrotaskeiðs sem hér um ræðir. Leiðin til hagsældar hér er vörðuð góðum alþjóðasamningum.

Ísland og EES samningurinn

Árið 1993, tíu árum eftir að Vísbending var fyrst gefin út, var gengið frá samningnum um aðild Íslands að evrópska efnahagssvæðinu, EES, sem tók gildi 1. janúar 1994. Sá viðburður er líklegast sá einstaki samningur sem haft hefur hve mest áhrif á efnahag lands og þjóðar. Ég leyfi mér hér á þessum tímamótum að segja – frá upphafi.

Stundum taka viðburðir sem gerast í vendipunkti nokkurn tíma að virka. Ný stefna verður ekki strax alveg ljós og þær umbreytingar ná ekki fyllilega að birtast fyrr en síðar í raunverulegum efnahagsaðstæðum. Þannig liðu nokkur ár frá því að Brexit samningur um útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu tók gildi þar til samningsbreytingarnar sýndu sína fullu efnahagslegu virkni.

Þær breytingar skiptu litlu fyrir Evrópu en hafa enn slæmar efnahagslegar afleiðingar í Bretlandi. Fyrir Ísland, sem stendur enn með eina löpp hvoru megin, þá birtast þessir alþjóðasamningar samt vel hjá litlu tímabundnu flugfélagi á Norðurlandi sem ekki fékk að fljúga til London. Áhugaverð hugarleikfimi, eða rannsókn, væri að kanna hver áhrif EES samningsins hafi verið á íslenska ferðaþjónustu eða áhrif uppsagnar samningsins á þessa meginstoð íslensks útflutnings.

Ljóst er að hin hraða uppbygging innviða og ferðaþjónustunnar sjálfrar hefur að miklum hluta farið fram fyrir tilstilli stórs hluta þess rúmlega sextíu og brátt sjötíu þúsundasta íbúa á Íslandi sem fæddir eru annars staðar, langflestir í löndum Evrópu.

Þó vissulega hafi hið frjálsa flæði fjármagns innan hins sameiginlega evrópska markaðar, sem EES samningurinn tryggir, átt sitt að segja um bankahrunið fyrir fimmtán árum. Þá er eins ljóst að hið frjálsa flæði vinnuafls, innan markaðarins sem samningurinn nær utan um, er grundvöllurinn að hinni öflugu uppbyggingu sem hefði annars ekki verið möguleg með íslensku vinnuafli eingöngu.

Bakgrunnurinn og Bretton Woods samningarnir

Efnahagsstjórnun heimsins breyttist eftir seinni heimsstyrjöldina og er Marshall aðstoðin sá þáttur sem hafði hve mest áhrif á íslensk efnahagsmál og nútímavæðingu landsins. Aðstoðin var ekki aðeins ætluð til uppbyggingar Evrópu eftir stríðsskaðann og endurbyggingu þeirra innviða sem sprengdir höfðu verið í loft upp. Hugmyndin að baki hinni fjárhagslegu aðstoð var jafnframt að byggja upp stjórnskipulag og efnahagsumhverfi meðal vesturlandanna svokölluðu sem samrýmdist hugmyndafræði sem uppruna sinn átti í Bandaríkjunum.

Samningarnir í Bretton Woods undir lok síðari heimsstyrjaldar fólu í sér sigur bandarískrar stefnu, sem Harry Dexter White stóð fyrir, á meðan að hin breska hlið, sem John Maynard Keynes stóð fyrir varð í raun og veru undir í samkeppni hugmyndanna.1

Bretton Woods ráðstefnan stóð yfir fyrstu þrjár vikurnar í júlí 1944 og er oft talin marka upphaf alþjóðlegrar samvinnu leiðtoga heims og til að hanna stofnanauppbyggingu sameiginlegrar framtíðar að stríðslokum. Það hvenær Bretton Woods tímabilið í efnahagsstjórn heimsins stóð yfir er samt ekki skýrt afmarkað eins og kemur vel fram í nýrri bók Martin Daunton (2023) The Economic Government of the World sem Adam Tooze rýnir í Financial Times nýlega. 2

En Daunton sýnir fram á hvernig Bretton Woods atburðurinn og viðskiptastefna eftirstríðsáranna voru í raun afleiðingar stríðsins sjálfs. Valdatafl skipti þar miklu máli. Að hans mati eru því draumórar að tala um nýja útgáfu af Bretton Woods samkomulagi.3

Það efnahagskerfi, sem stundum er kennt við Bretton Woods samningana, leið síðan undir lok þegar að peningakerfi eftirstríðsáranna með fastgengisstefnu féll saman í lok mars 1973 eða við þann viðburð um miðjan ágúst 1971 þegar að Nixon tók Bandaríkjadalinn af gullfæti. Þessi gullaldartími eftirstríðsáranna fól í sér að saman fór mikil fjárfesting, hagvöxtur og lítið sem ekkert atvinnuleysi. Þá gilti einnig á þessum fastgengistíma, með takmörkuðum fjármagnsflutningum milli landa, að saman fór hækkun hagnaðar, verðlags og launa – sem allir nutu góðs af.

„Samningar eru ekki endanlegir heldur þurfa stöðuga aðlögun og fela jafnvel í sér óstöðvandi umbreytingar.“

Bretton Woods tímabilið er oft bæði tengt við Marshall aðstoðina og hina svokölluðu keynsísku byltingu í efnahagsstefnu víða um heim. Nýja keynsíska hagfræðin þarna verður síðan vissulega bakgrunnur krísunnar sem leiðir til endaloka …

Fáðu áskrift til að lesa

Áskrift að Vísbendingu hæfir þeim sem hafa gaman að óvilhöllum greiningum og gagn af greinargóðum upplýsingum um efnahagsmál, viðskipti og nýsköpun.

Næsta grein

Mest lesið
1
Atvinna

Er atvinnuleysi innflytjenda næmara fyrir hagsveiflum?

2
Aðrir sálmar

Gylfaginning

3
Loftslagsmál

París, prósentur og prófsteinninn

4
Aðrir sálmar

Af Atómstöðinni

5
Opinber fjármál

Nýtt grunnviðmið fyrir stjórnarhætti opinberra aðila

6
Umhverfi

Ef Ísland væri borg á meginlandi Evrópu

Reykjavíkurhöfn
Efnahagsmál 32. tbl.

Hvert er mark­mið efna­hags­lífs­ins?

Mikilvægi skilnings á samhengi og hugtökum
Reykjavík

Staða há­skóla­mennt­aðra á hús­næð­is­mark­aði

Ný könnun Félagsvísindastofnunar HÍ bendir til þess að háskólamenntun ein og sér tryggi ekki greiða leið inn á húsnæðismarkað. Flestir eignast að lokum eigið húsnæði, en leiðin þangað virðist orðin lengri og kostnaðarsamari en áður og byggist oft á stuðningi fjölskyldu, skuldsetningu og miklu vinnuframlagi.
Stjórnarráðið
Efnahagsmál 31. tbl.

Til hvers eru op­in­ber fjár­mál?

Mikilvægi umræðunnar um tölur og orð

Peningar
Efnahagsmál 31. tbl.

Und­ir­liggj­andi kostn­að­ar­þrýst­ing­ur

Launa-framleiðnibilið, framlegð og atvinnustig á Íslandi
AFP__20240320__economou-notitle240319_npstx__v1__HighRes__EuFlagsInBrussels

Evr­ópa og nýi heim­ur­inn

vesturheimur og vesturveldin eru hugtök til að endurskilgreina