USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
Til baka

Kverka­tak hins sterka

- getur dregið allan mátt úr heimilisbókhaldi og hagkerfum

Það gleymist oft að peningar eru félagslegt fyrirbæri. Þeim hefur sögulega stundum verið líkt við flæðandi fyrirbæri, eins og olíu, blóð eða vatn – auk þess sem mörgum þykir gott að binda þá við harða, fasta og jafnvel málmkennda hluti. En peningar eru hvorki hlutur né náttúrulegt fyrirbæri.

Gullfótur peninga var ekki til þess ætlaður að góðmálmur tryggði fólki nokkurt gagn heldur var hann sögulegt fyrirbæri sem hafði þróast yfir í ákveðið tregðuvægishlutverk bæði innan landa og milli þeirra.

Stundum er peningum líkt við orku eða aflvaka. Viss kvikasilfurseiginleiki íslenskrar verðtryggingar tryggir að höfuðstóll verður aldrei étinn upp (nema í örlitlum skömmtum) og tryggir skuldabréfaeigendum góðan og öruggan arð en útgefendum eitrað bragð.

Þó að tæp 14% útgefinna skuldabréfa bandaríska ríkissjóðsins séu verðtryggð, eins og kemur fram í seinni grein vikunnar, þá eru húsnæðislán þar það ekki. Hérlendis eru 25% ríkisskulda verðtryggðar og 90% húsnæðisskulda en fyrir tveimur árum var rúmur helmingur óvertryggður.

Forsíðugrein vikunnar fjallar um hvernig sá kenningagrunnur sem peningastefnan hér byggist á veldur því að aðgerðir seðlabankans eru ómarkvissar og óréttlátar. Verðbólgan hér hefur verið þrálátari en í nágrannalöndunum þrátt fyrir mun hærra vaxtastig. Hafi einhver einhverntíman trúað því að verðbólga sér ávallt og allstaðar peningalegt fyrirbæri – þá gæti farið svo að Ísland verði gott sýnidæmi til að afsanna þá staðhæfingu.

Hryggjarstykkið í íslenska fjármálakerfinu og hinn sterki tregðuvægisgjafi er hin verðtryggða króna. Þeir háu raunvextir sem henni fylgja gera það að verkum að laun hafa hækkað um 8% á síðasta ári og fasteignamat íbúðahúsnæðis á landinu fyrir þetta ár hækkar nú í vikunni um yfir 10%.

Nýfrjálshyggjuhagfræðin sem prófessorarnir tveir í æðstu embættum seðlabankans og fjármálaráðuneytisins hafa áður kennt öllu hagfræðingastóði landsins lætur hjörðina trúa því að háu raunvextirnir geti töfrað fram lækkun húsnæðisverðs og þannig minni verðbólgu – en það er eitthvað sem enginn annar skilur.

Næsta grein

Mest lesið
1
Atvinna

Er atvinnuleysi innflytjenda næmara fyrir hagsveiflum?

2
Aðrir sálmar

Gylfaginning

3
Loftslagsmál

París, prósentur og prófsteinninn

4
Aðrir sálmar

Af Atómstöðinni

5
Opinber fjármál

Nýtt grunnviðmið fyrir stjórnarhætti opinberra aðila

6
Umhverfi

Ef Ísland væri borg á meginlandi Evrópu

Reykjavíkurhöfn
Efnahagsmál 32. tbl.

Hvert er mark­mið efna­hags­lífs­ins?

Mikilvægi skilnings á samhengi og hugtökum
Reykjavík

Staða há­skóla­mennt­aðra á hús­næð­is­mark­aði

Ný könnun Félagsvísindastofnunar HÍ bendir til þess að háskólamenntun ein og sér tryggi ekki greiða leið inn á húsnæðismarkað. Flestir eignast að lokum eigið húsnæði, en leiðin þangað virðist orðin lengri og kostnaðarsamari en áður og byggist oft á stuðningi fjölskyldu, skuldsetningu og miklu vinnuframlagi.
Peningar
Efnahagsmál 31. tbl.

Und­ir­liggj­andi kostn­að­ar­þrýst­ing­ur

Launa-framleiðnibilið, framlegð og atvinnustig á Íslandi

Stjórnarráðið
Efnahagsmál 31. tbl.

Til hvers eru op­in­ber fjár­mál?

Mikilvægi umræðunnar um tölur og orð
AFP__20240320__economou-notitle240319_npstx__v1__HighRes__EuFlagsInBrussels

Evr­ópa og nýi heim­ur­inn

vesturheimur og vesturveldin eru hugtök til að endurskilgreina