USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
Til baka

Málsvörn emb­ætt­is­manna

Hagfræðingar, stjórnmálafólk og embættismenn eru til umfjöllunar í tilefni ríkisstjórnarslita, borgarstjórnarslita og stefnuræðu forsætisráðherra.

Tveir hagfræðingar gegna nú mikilvægustu embættisstörfum efnahagsstjórnar landsins. Báðir eru prófessorar í leyfi frá hagfræðideild Háskóla Íslands. Annar stýrir Seðlabanka Íslands sem ópólitískur embættismaður á sínu sjötta ári af tíu ára skipunartíma. Hinn, er varaformaður Viðreisnar, og nýtekinn við sem fjármálaráðherra, án þess að hafa verið kosinn til Alþingis en situr því með nokkurs konar embættismanns hatti í því pólitíska embætti. Þeim báðum ásamt öðrum lesendum er bent á málsvörn þriðja hagfræðiprófessorsins hér í vikuritinu, sem leggur áherslu á hugrekkið.

Tveir stjórnmálamenn hafa með um fjögurra mánaða millibili slitið stjórnarsáttmálum meirihluta sinna í annars vegar ríkisstjórn og hins vegar borgarstjórn. Þeir vísuðu báðir skýrt til eigin ákvörðunar um slitin, sem virðist þeirra einna en ekki hópsins. Önnur líkindi eru að forverum þeirra hafði tekist að leiða sömu stjórnarmeirihluta margfalt lengur. Málsvarnir þeirra um eigið hagsmunamat hljóma því hjáróma í hinu víðara samhengi.

Þessi stjórnkænska einstaklinganna er, eins og Gísli Marteinn fjölmiðlamaður og fyrrum stjórnmálamaður dró fram í Morgunútvarpi Rásar 2, einhver karllæg tíska nú víða um heim sem felst helst í því að gera eitthvað óvænt. Hin óvæntu stjórnarslit koma á krefjandi tímum fyrir efnahagsstjórn landsins og í borgarstjórn þegar verkföll vofa yfir í skólakerfinu.

Annars konar stíll stjórnarhátta birtist í stefnuræðu forsætisráðherra og hinna leiðtoga ríkisstjórnarinnar í umræðum um hana, nú í upphafi vikunnar – eftir óveðursfrestun frá þingsetningu í fyrri viku. Þar átti hin stórkallalega, og á stundum eitraða karlmennska, einnig sína djúpu rödd, sem sumum finnst skemmtilegust.

Mjúk lending hagkerfisins hefur talsvert verið til umræðu hjá seðlabankastjóra eftir vaxtaákvörðun í síðustu viku. En nú í vikunni birti Vinnumálastofnun nýjar tölur um atvinnuleysi sem var orðið 4,2% í janúar og hefur ekki verið hærri frá lokum farsóttarinnar.

Í forsíðugrein vikunnar eru Alþingi og seðlabankastjóra gefnar ábendingar um hvernig lánakvótar í stað vaxtahækkana geti bætt framgang eða miðlun peningastefnunnar og vaxtaleiðni Seðlabankans meðal annars með vísun í hann sjálfan.

Næsta grein

Mest lesið
1
Atvinna

Er atvinnuleysi innflytjenda næmara fyrir hagsveiflum?

2
Aðrir sálmar

Gylfaginning

3
Loftslagsmál

París, prósentur og prófsteinninn

4
Aðrir sálmar

Af Atómstöðinni

5
Opinber fjármál

Nýtt grunnviðmið fyrir stjórnarhætti opinberra aðila

6
Umhverfi

Ef Ísland væri borg á meginlandi Evrópu

Reykjavíkurhöfn
Efnahagsmál 32. tbl.

Hvert er mark­mið efna­hags­lífs­ins?

Mikilvægi skilnings á samhengi og hugtökum
Reykjavík

Staða há­skóla­mennt­aðra á hús­næð­is­mark­aði

Ný könnun Félagsvísindastofnunar HÍ bendir til þess að háskólamenntun ein og sér tryggi ekki greiða leið inn á húsnæðismarkað. Flestir eignast að lokum eigið húsnæði, en leiðin þangað virðist orðin lengri og kostnaðarsamari en áður og byggist oft á stuðningi fjölskyldu, skuldsetningu og miklu vinnuframlagi.
Stjórnarráðið
Efnahagsmál 31. tbl.

Til hvers eru op­in­ber fjár­mál?

Mikilvægi umræðunnar um tölur og orð

Peningar
Efnahagsmál 31. tbl.

Und­ir­liggj­andi kostn­að­ar­þrýst­ing­ur

Launa-framleiðnibilið, framlegð og atvinnustig á Íslandi
AFP__20240320__economou-notitle240319_npstx__v1__HighRes__EuFlagsInBrussels

Evr­ópa og nýi heim­ur­inn

vesturheimur og vesturveldin eru hugtök til að endurskilgreina