USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
Til baka

Taum­hald út­gjalda­vaxt­ar

Hagvöxtur hér og þar – sem hefur áhrif

Það gleymist oft að skuld eins er ávallt eign einhvers annars. Hérlendis eru kjöraðstæður til að eiga skuldir vegna verðtryggingar og hárra vaxta. Í Bandaríkjunum, því óskalandi kapítalsins, þurfa eigendur skulda að geta þolað að tapa á þeim eignum vegna lélegra raunvaxta. Bankarnir hér fá 4% raunvexti á innstæður sínar nú og væntanlega áfram samkvæmt forsíðugrein. Það gerir vexti opinberra skulda einnig háa.

Verðbólgan vestanhafs hækkaði minna en búist var við í síðustu viku og er nú 2,4% þar, og stýrivaxtaviðmiðið er 4,25-4,5% sem gefur raunstýrivextir kringum 2% – þeim var haldið óbreyttum í vikunni. Þar greiðir seðlabankinn þó bönkum ekki vexti á innstæður heldur stýrir vaxtaganginum í lánum milli bankanna sjálfra.

Hagvaxtarhorfur dökkna nú stöðugt þar og er vert að benda lesendum á mjög áhugavert sex þátta samtal milli Martin Wolf og Paul Krugman í hlaðvarpi hjá Financial Times, sem er hálfnað og mun halda áfram inn í næsta mánuð.

Þá skrifaði seðlabankastjóri Evrópu, Christine Lagarde mjög merka grein á þjóðhátíðardaginn um möguleikana á því að evran taki við stærra alþjóðlegu hlutverki. Sem hefur verið á herðum dalsins en unnið er að því að brjóta niður hratt nú um stundir.

Opinber útgjöld hafa vaxið stöðugt hérlendis, án vandræða, vegna hagvaxtar en það hefur alveg gleymst að deila honum niður á mannfjölda. Líkt og forsætisráðherra vor gerði skilmerkilega grein fyrir í samtali í Háskóla Íslands í síðustu viku þá hefur hagvöxturinn í raun verið enginn.

Síðari grein blaðsins fjallar um mikilvægi útgjaldagreiningar. Þó varð þar að gera athugasemd við rangar upplýsingar í opinberum gögnum frá Íslandi til OECD. Gæði gagna og greining þeirra eru algerar frumforsendur réttra ákvarðana í efnahagsstjórn.

Í næstu viku kemur út stórt sumarblað Vísbendingar þar sem þemað er nýsköpun. Svo verður sumarhlé í júlí en næsta vikurit kemur út fljótlega eftir Verslunarmannahelgina.


Athugasemd ritstjóra við kökuritið með annarri grein vikunnar: Þó svo að Ísland segist gera útgjaldagreiningar (e. spending reviews) árlega samkvæmt opinberum gögnum frá OECD1 þá verður þess ekki vart í íslenskum gögnum að svo sé tilfellið, þó mögulega hafi verið gerð tilraun til þess fyrir einhverjum árum.

Næsta grein

Mest lesið
1
Atvinna

Er atvinnuleysi innflytjenda næmara fyrir hagsveiflum?

2
Aðrir sálmar

Gylfaginning

3
Loftslagsmál

París, prósentur og prófsteinninn

4
Aðrir sálmar

Af Atómstöðinni

5
Opinber fjármál

Nýtt grunnviðmið fyrir stjórnarhætti opinberra aðila

6
Umhverfi

Ef Ísland væri borg á meginlandi Evrópu

Reykjavíkurhöfn
Efnahagsmál 32. tbl.

Hvert er mark­mið efna­hags­lífs­ins?

Mikilvægi skilnings á samhengi og hugtökum
Reykjavík

Staða há­skóla­mennt­aðra á hús­næð­is­mark­aði

Ný könnun Félagsvísindastofnunar HÍ bendir til þess að háskólamenntun ein og sér tryggi ekki greiða leið inn á húsnæðismarkað. Flestir eignast að lokum eigið húsnæði, en leiðin þangað virðist orðin lengri og kostnaðarsamari en áður og byggist oft á stuðningi fjölskyldu, skuldsetningu og miklu vinnuframlagi.
Peningar
Efnahagsmál 31. tbl.

Und­ir­liggj­andi kostn­að­ar­þrýst­ing­ur

Launa-framleiðnibilið, framlegð og atvinnustig á Íslandi

Stjórnarráðið
Efnahagsmál 31. tbl.

Til hvers eru op­in­ber fjár­mál?

Mikilvægi umræðunnar um tölur og orð
AFP__20240320__economou-notitle240319_npstx__v1__HighRes__EuFlagsInBrussels

Evr­ópa og nýi heim­ur­inn

vesturheimur og vesturveldin eru hugtök til að endurskilgreina