USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
Til baka

Vond­ur hag­vöxt­ur og góð­ur

og mismunandi afrakstur hans

Smiðja - Alþingi
Mynd: Golli

Hagvöxtur hefur lengi verið talinn góður, meðal hagfræðinga. Þó þekkt sé að hann mæli meiri hernað sem aukinn vöxt en fleiri klukkutíma í barnauppeldi sem neikvæða framleiðni. Ef rétt er að hagvöxturinn sem verið hefur hérlendis undanfarin ár sé ein mikilvægasta skýring verðbólgunnar og þannig hinna háu vaxta þá er enn furðulegra að stöðnun hans undanfarin misseri hafi ekki skilað sér í minni verðbólgu, heldur þveröfugt.

Báðar greinar vikunnar tengjast velsæld (e. wellbeing), bæði mælikvörðum og ráðstefnu um hana. Viðbótarmælikvarðar umfram hagvöxt hinnar margumtöluðu vergu landsframleiðslu ná nú alþjóðlegu flug. Athyglisvert er að orðið velsæld kemur fyrir sjö sinnum í framlagðri þingsályktunartillögu um fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir næstu fimm ár og virðast þau vera samheiti við orðið hagsæld, sem kemur fyrir þrisvar sinnum. Verg landsframleiðsla kemur á hinn bóginn fyrir í skammstöfuninni VLF samtals 174 sinnum í skjalinu sem er 188 síður.

Öll spágerð, hvort sem er um hagvöxt eða aðrar framtíðarhorfur, hefur aftur orðið erfiðari nú í breyttum heimi líkt og á tímum heimsfaraldurs. Seðlabankar hafa breytt áherslum sínum víða í kringum okkur. Ástandið er nú þannig að varhugavert er að reikna líkur til framtíðar út frá jafnri drefingu áhættu, sem byggir á því að heimurinn verði í framtíðinni líkur fortíð, og lítið gagn af því að útvíkka það bil. Róttæk óvíssa, kennd við Frank Knight, er besta lýsing ástandsins nú og eru seðlabankar nágrannalandanna búnir að skipta um gír og nota ólíkar sviðsmyndir fyrir róttækar breytingar nú á tíma óvissunnar.

Kyrrstöðu- eða kreppuverðbólgan (e. stagflation) sem nefnd var í sálmunum í ágúst síðastliðnum er nú líklega komin hérlendis og varað við hættunni af henni víðar í álfunni. Það hversu lengi orkukrísan mun vara er enn óljóst líkt og í Silfrinu í síðustu viku. Áhugavert framhald umræðu um það má heyra í hlaðvarpi Financial Times í gær.

Næsta grein

Mest lesið
1
Atvinna

Er atvinnuleysi innflytjenda næmara fyrir hagsveiflum?

2
Aðrir sálmar

Gylfaginning

3
Loftslagsmál

París, prósentur og prófsteinninn

4
Aðrir sálmar

Af Atómstöðinni

5
Opinber fjármál

Nýtt grunnviðmið fyrir stjórnarhætti opinberra aðila

6
Umhverfi

Ef Ísland væri borg á meginlandi Evrópu

Reykjavíkurhöfn
Efnahagsmál 32. tbl.

Hvert er mark­mið efna­hags­lífs­ins?

Mikilvægi skilnings á samhengi og hugtökum
Reykjavík

Staða há­skóla­mennt­aðra á hús­næð­is­mark­aði

Ný könnun Félagsvísindastofnunar HÍ bendir til þess að háskólamenntun ein og sér tryggi ekki greiða leið inn á húsnæðismarkað. Flestir eignast að lokum eigið húsnæði, en leiðin þangað virðist orðin lengri og kostnaðarsamari en áður og byggist oft á stuðningi fjölskyldu, skuldsetningu og miklu vinnuframlagi.
Peningar
Efnahagsmál 31. tbl.

Und­ir­liggj­andi kostn­að­ar­þrýst­ing­ur

Launa-framleiðnibilið, framlegð og atvinnustig á Íslandi

Stjórnarráðið
Efnahagsmál 31. tbl.

Til hvers eru op­in­ber fjár­mál?

Mikilvægi umræðunnar um tölur og orð
AFP__20240320__economou-notitle240319_npstx__v1__HighRes__EuFlagsInBrussels

Evr­ópa og nýi heim­ur­inn

vesturheimur og vesturveldin eru hugtök til að endurskilgreina