USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500

Grein

Grein 5. tbl.

Áhrif lofts­lags á úr­komu, jökla og líf­rík­ið

Vísindanefnd um loftslagsbreytingar skilaði af sér samantektar skýrslu um umfang og afleiðingar loftslagsbreytinga á Íslandi í október 2023. Fyrsta greinin um niðurstöður hennar birtist í fyrsta tölublaði árins um áhrifin á hitastig. Hér birtist önnur grein, um áhrif slíkrar hlýnunar á breytingar í úrkomu, afrennsli, afkomu jökla og sjávarstöðubreytinga auk þess sem áhrif á lífríki á landi, í sjó og vötnum eru einnig til umfjöllunar. Þriðja grein fjallar svo um samfélagsleg og efnahagsleg áhrif birtist á næstunni.
dji-20240114164302-0072-d_4RKJ72Z (1)
Grein 4. tbl.

Hvern­ig á að greiða fyr­ir tjón­ið?

Húsnæði í Grindavík kostar um 107 milljarða króna en óljóst er hvernig fjármagna skuli uppkaup þess ef ríkissjóður ætlar að hlaupa undir bagga og losa þá eigendur sem kjósa að komast með eignir sínar úr bænum.
Grein 4. tbl.

Til­boð­ið sem bjarg­aði jól­un­um

Farið er yfir fjárhagsleg umbrot á hlutabréfamarkaðinum á síðasta ári og horft fram á veg á þessu ári. Afmæli Marels fór úr böndunum og svo kom yfirtökutilboð sem sneri öllu við. Nú er beðið eftir bandarískri blessun bæði fyrir samruna Marels og leyfisveitingu til Alvogens sem mikil áhrif hefur á hlutabréfaverð og fleira.
Grein 3. tbl.

Að skipta kök­unni

Svigrúmið til kjarabóta sem þó felast að mestu í að bæta upp tapaðan kaupmátt er mikið til umræðu. Í þessari grein er launahlutfallið sett í samhengi við raungengisvísitölu miðaða við verðlag og laun auk þess sem lækkandi skuldir fyrirtækja styrkja möguleikana á auknu svigrúmi.
afp.com-20231228-partners-080-HLUE_UEHL_009486-highres
Grein 3. tbl.

Höf­uð­smið­ur horn­steins Evr­ópu­sam­bands­ins

Jacques Delors (1925-2023) hinn franski arkitekt evrunnar og hins sameiginlega innri markaðar er látinn og einnig Wolfgang Schäugle (1942-2023) reynslumesti stjórnmálamaður Evrópu og varðmaður skuldabremsunnar á þýskar ríkisskuldir, þeir voru fyrrverandi fjármálaráðherrar þessara tveggja höfuðríkja álfunnar og ákveðnar erkitýpur fyrir mismunandi efnahaglega sýn á opinber fjármál og pólitíska stefnumótun.
afp.com-20220822-partners-043-dpa-pa_220822-99-472415_dpai-highres
Grein 2. tbl.

Verð­bólga hér og í við­skipta­lönd­un­um

Verðbólgan á sér margar orsakir og í þessari grein er hún borin saman hérlendis við viðskiptalöndin, vísitölur greindar og samhengið við gengi gjaldmiðilsins. Þá er fjallað um drifkraftana að baki henni út frá launum og hagnaði ásamt viðbrögðum peningastefnunnar.
Grein 2. tbl.

End­ur­skoð­uð um­gjörð op­in­berra fjár­mála

Mikilvægu samkomulagi meðal fjármálaráðherra Evrópusambandslandanna var náð rétt fyrir jól um hvernig að fjármálareglur um skuldalækkun og hallarekstur opinberra fjármála tækju aftur gildi nú í ár. Þar skiptir mestu hvernig umgjörð reglnanna er aðlöguð breyttum aðstæðum eftir heimsfaraldur og skuldaaukningu vegna hans auk annarra áskorana í opinberum rekstri.
Grein 1. tbl.

Áhrif lofts­lags­breyt­inga á hita­stig

Í þessari fyrstu grein af þremur er fjallað um helstu niðurstöður fjórðu samantektarskýrslu vísindanefndar um loftslagsbreytingar varðandi umfang og afleiðingar hnattrænna loftslagsbreytinga á Íslandi.
IMG_1412
Grein 45. tbl.

Ævi­mennt­un sem lyk­ill að far­sæld - Mót­un nýrr­ar mennta­stefnu um fram­halds­fræðslu

Umbreytandi menntun er mikilvæg forsenda fyrir framþróun vinnumarkaðarins. Ný menntastefna fyrir fullorðinsfræðslu og ævimenntun er nú í mótun og fyrirhuguð lagasetning og innleiðing hennar kallar meðal annars á þverfræðilegt viðbragð við loftslagsbreytingum og samfélagsáskorunum í tengslum við vinnumarkaðinn.
Claudia goldin
Grein 45. tbl.

Nóbels­verð­laun í vinnu­mark­aðs­hag­fræði

Claudia Goldin fær verðlaun sænska seðlabankans til minningar um Alfreð Nóbel, 2023. Hér er farið yfir rannsóknir hennar, meðal annars á mátti pillunnar og hvernig græðgisstörf hafa áhrif á launamun og kynjamismunun.
Isafjordur2
Grein 45. tbl.

Fjór­ar stoð­ir frum­fram­leiðslu á Vest­fjörð­u­m, þar af þrjár nýj­ar

Atvinnulífið og vinnumarkaðurinn allt í kringum landið skiptir miklu máli fyrir áframhaldandi uppbyggingu og þróun efnahagslífsins - þar sem ferðaþjónusta og nýsköpun leika stórt hlutverk.
Grein 45. tbl.

Stjórn­valds­að­gerð­ir og að­gerða­leysi á hús­næð­is­mark­aði

Áhrif stjórnvalda á húsnæðismarkaði hafa oftar en ekki beinst að eftirspurnarhlið og ýtt undir þennslu frekar en draga úr henni. Verðlags- launa- og húsnæðisverðsþróun er sett í sögulegt samhengi við greiðslubyrði lána og raunbreytingar launa og húsnæðis í þessari grein.
kranar_byggingar
Grein 45. tbl.

Þétt byggð, leig­u- og fast­eigna­verð

Hægt er að sýna fram á með alþjóðlegum rannsóknum að þétting byggðar leiðir til lækkunar húsnæðiskostnaðar. Í þessari grein eru færð rök fyrir því að bætt landnýtingu og aukið framboð húsnæði leggi sitt af mörkum til lækkunar leigu og fasteignaverðs hérlendis einnig.
laugavegur-3
Grein 45. tbl.

Um verk­föll og verk­bönn

Verkföll og vinnudeilur eru oft sögð of algeng hérlendis. Talnagreining sýnir þó að Íslendingar eiga ekki heimsmet í þeim og á vissum tímabilum eru þau fátíð. Samfélagslegur kostnaður af verkföllum er mikill og því mikilvægt að bæta traust milli samningsaðila. Með betri undirbúningi og vel samsettum samninganefndum er mögulegt að draga úr vinnudeilum.
grindavik
Grein 45. tbl.

Stöð­ug­leik­inn og póli­tísk ábyrgð

Forseti Alþýðusambandsins fer yfir það hver beri ábyrgð á stöðugleikanum í efnahagslífinu og hvernig neyðarástand í húsnæðismálum, minnkandi kaupmáttur og þyngri framfærsla kalli á endurreisn stuðningskerfa með tilfærslum til heimila í stað sveltistefnun.
vík
Grein 45. tbl.

Efna­hags­leg vel­meg­un er sam­of­in raun­veru­legri fjár­fest­ingu í inn­gild­ingu

Samhengi hagvaxtar og fólksfjölgunar innflytjenda á vinnumarkaði verður stöðugt skýrara. Inngilding og stefnumiðuð fjárfesting á því sviði skiptir því miklu máli fyrir fyrir efnahagslega velmegun og þarf að vera hluti samningsviðræðna á vinnumarkaði.
leikskoli01
Grein 45. tbl.

Vel­ferð­ar­mál eru kjara­mál

Sáttin sem nást þarf í kjarasamningum komandi árs verður að innifela félagslegar umbætur og má ekki þrengja að foreldrum ungra barna eða leggja þyngri byrðar á lág- og millitekjufólk. Verkalýðshreyfingin þarf að sýna framsækni, samstöðu og kjark til að efla velferðina en ekki láta stjórnvöld og atvinnurekendur komast upp með að skerða hana.
gummij
Grein 45. tbl.

Sam­skipti á ís­lensk­um vinnu­mark­aði

Lagagrunnur og einkenni íslensks vinnumarkaðar með mikilli stéttarfélagsaðild markar samskipin þar og er hér farið yfir þau atriði sem skýrt geta háa verkfallstíðni og einkenni aðkomu stjórnvalda að deilum um kaup og kjör.
SA
Grein 45. tbl.

Munu kjara­samn­ing­ar næsta árs stuðla að stöð­ug­leika eða kynda verð­bólgu­bál­ið?

Efnahagsleg skynsemi og réttlæti á vinnumarkaði eru ekki andstæður, segir stjórnarmaður í Samtaka atvinnulífsins og Samtaka iðnaðarins. Aðrar þjóðir eru hálfdrættingar í launahækkunum samanborið við okkur Íslendinga. Við þurfum að læra af reynslunni og ná samstöðu um breytingar til að ná böndum á verðbólguna.
dsf5703
Grein 45. tbl.

Ást­in, um­hyggj­an og kapp­hlaup­ið við tím­ann – hið ósýni­lega valda­tafl

Hvað veldur kynjaójöfnuði í stjórnendastöðum? Tíminn og valdið yfir honum skipta þar máli auk þess sem menningarleg og kynjuð afstaða til þess hvernig umhyggjan og ástarkrafturinn eiga sér stað leika mikilvægt hlutverk.
Peningar krónur
Grein 44. tbl.

Af hverju er hag­vöxt­ur að drag­ast sam­an svona hratt?

Hagvöxtur dregst nú hratt saman meðal annars vegna þess að lánakippurinn (e. credit impulse) er að deyja út. Lánakippur er summa halla ríkissjóðs og nýrra lána úr bankakerfinu.
forsidumynd
Grein 44. tbl.

Lífs­kjara­samn­ing­ur­inn gerð­ur upp

Skýrslur Kjaratölfræðinefndar varpa ljósi á launaþróun og hlutfallslegri þróun á milli stéttarfélaga, greining á þeirri þróun út frá fyrri skýrslum og þeirri nýjustu skapar forsendur til uppgjörs á Lífskjarasamningnum sem sett er fram í þessari grein
48804215602_bb2b765456_k
Grein 43. tbl.

Nei­kvæð áhrif mik­ill­ar verð­bólgu

Peningastefnunefnd ákvað á vaxtaákvörðunarfundi sínum í nóvember 2023 að halda vöxtum óbreyttum í 9,25% og fundargerð nefndarinnar birtist ávalt tveimur vikum síðar, fyrr í vikunni og hér skrifar annar af tveimur ytri nefndarmönnum grein sem einnig skýrir vaxtaákvörðunina.