USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
USD 122,1 -0,3%
EUR 136,8 -0,1%
GBP 161,4 -0,2%
DKK 18,3 -0,2%
SEK 12,2 0,1%
NOK 12,8 -0,1%
CHF 146,9
CAD 85,8 -0,1%
JPY 0,8 -0,3%
Stýrivextir 8%
Verðbólga 5,9%
Mannfjöldi 396.500
IML_0389 copia
Viðtal 45. tbl.

Mennt­un er um­breyt­ing­ar­afl - Yf­ir­stand­andi um­skipti á um­gjörð og inni­haldi skóla­starfs

Menntun er lykilatriði fyrir framþróun vinnumarkaðarins. Menntastofnanir undirbúa nemendur fyrir atvinnulífið og þátttöku á vinnumarkaði. Þema áramótablaðs Vísbendingar er vinnumarkaður í víðtækum skilningi. Því er viðtal vikuritsins við háskólakennara á heimsvísu: Concepción Galdón, prófessor á sviði frumkvöðlafræða hjá IE háskólanum í Madríd er aðstoðardeildarforseti og akademískur leiðtogi á sviði samfélagslegrar nýsköpunar. Hún deilir með lesendum blaðsins sýn sinni á yfirstandandi byltingu á sviði sjálfbærni og nauðsynlega þróun skólastarfs í því ljósi.
IMG_1412
Grein 45. tbl.

Ævi­mennt­un sem lyk­ill að far­sæld - Mót­un nýrr­ar mennta­stefnu um fram­halds­fræðslu

Umbreytandi menntun er mikilvæg forsenda fyrir framþróun vinnumarkaðarins. Ný menntastefna fyrir fullorðinsfræðslu og ævimenntun er nú í mótun og fyrirhuguð lagasetning og innleiðing hennar kallar meðal annars á þverfræðilegt viðbragð við loftslagsbreytingum og samfélagsáskorunum í tengslum við vinnumarkaðinn.
Claudia goldin
Grein 45. tbl.

Nóbels­verð­laun í vinnu­mark­aðs­hag­fræði

Claudia Goldin fær verðlaun sænska seðlabankans til minningar um Alfreð Nóbel, 2023. Hér er farið yfir rannsóknir hennar, meðal annars á mátti pillunnar og hvernig græðgisstörf hafa áhrif á launamun og kynjamismunun.
Isafjordur2
Grein 45. tbl.

Fjór­ar stoð­ir frum­fram­leiðslu á Vest­fjörð­u­m, þar af þrjár nýj­ar

Atvinnulífið og vinnumarkaðurinn allt í kringum landið skiptir miklu máli fyrir áframhaldandi uppbyggingu og þróun efnahagslífsins - þar sem ferðaþjónusta og nýsköpun leika stórt hlutverk.
Grein 45. tbl.

Stjórn­valds­að­gerð­ir og að­gerða­leysi á hús­næð­is­mark­aði

Áhrif stjórnvalda á húsnæðismarkaði hafa oftar en ekki beinst að eftirspurnarhlið og ýtt undir þennslu frekar en draga úr henni. Verðlags- launa- og húsnæðisverðsþróun er sett í sögulegt samhengi við greiðslubyrði lána og raunbreytingar launa og húsnæðis í þessari grein.
kranar_byggingar
Grein 45. tbl.

Þétt byggð, leig­u- og fast­eigna­verð

Hægt er að sýna fram á með alþjóðlegum rannsóknum að þétting byggðar leiðir til lækkunar húsnæðiskostnaðar. Í þessari grein eru færð rök fyrir því að bætt landnýtingu og aukið framboð húsnæði leggi sitt af mörkum til lækkunar leigu og fasteignaverðs hérlendis einnig.
laugavegur-3
Grein 45. tbl.

Um verk­föll og verk­bönn

Verkföll og vinnudeilur eru oft sögð of algeng hérlendis. Talnagreining sýnir þó að Íslendingar eiga ekki heimsmet í þeim og á vissum tímabilum eru þau fátíð. Samfélagslegur kostnaður af verkföllum er mikill og því mikilvægt að bæta traust milli samningsaðila. Með betri undirbúningi og vel samsettum samninganefndum er mögulegt að draga úr vinnudeilum.
grindavik
Grein 45. tbl.

Stöð­ug­leik­inn og póli­tísk ábyrgð

Forseti Alþýðusambandsins fer yfir það hver beri ábyrgð á stöðugleikanum í efnahagslífinu og hvernig neyðarástand í húsnæðismálum, minnkandi kaupmáttur og þyngri framfærsla kalli á endurreisn stuðningskerfa með tilfærslum til heimila í stað sveltistefnun.
vík
Grein 45. tbl.

Efna­hags­leg vel­meg­un er sam­of­in raun­veru­legri fjár­fest­ingu í inn­gild­ingu

Samhengi hagvaxtar og fólksfjölgunar innflytjenda á vinnumarkaði verður stöðugt skýrara. Inngilding og stefnumiðuð fjárfesting á því sviði skiptir því miklu máli fyrir fyrir efnahagslega velmegun og þarf að vera hluti samningsviðræðna á vinnumarkaði.
leikskoli01
Grein 45. tbl.

Vel­ferð­ar­mál eru kjara­mál

Sáttin sem nást þarf í kjarasamningum komandi árs verður að innifela félagslegar umbætur og má ekki þrengja að foreldrum ungra barna eða leggja þyngri byrðar á lág- og millitekjufólk. Verkalýðshreyfingin þarf að sýna framsækni, samstöðu og kjark til að efla velferðina en ekki láta stjórnvöld og atvinnurekendur komast upp með að skerða hana.
gummij
Grein 45. tbl.

Sam­skipti á ís­lensk­um vinnu­mark­aði

Lagagrunnur og einkenni íslensks vinnumarkaðar með mikilli stéttarfélagsaðild markar samskipin þar og er hér farið yfir þau atriði sem skýrt geta háa verkfallstíðni og einkenni aðkomu stjórnvalda að deilum um kaup og kjör.
SA
Grein 45. tbl.

Munu kjara­samn­ing­ar næsta árs stuðla að stöð­ug­leika eða kynda verð­bólgu­bál­ið?

Efnahagsleg skynsemi og réttlæti á vinnumarkaði eru ekki andstæður, segir stjórnarmaður í Samtaka atvinnulífsins og Samtaka iðnaðarins. Aðrar þjóðir eru hálfdrættingar í launahækkunum samanborið við okkur Íslendinga. Við þurfum að læra af reynslunni og ná samstöðu um breytingar til að ná böndum á verðbólguna.
dsf5703
Grein 45. tbl.

Ást­in, um­hyggj­an og kapp­hlaup­ið við tím­ann – hið ósýni­lega valda­tafl

Hvað veldur kynjaójöfnuði í stjórnendastöðum? Tíminn og valdið yfir honum skipta þar máli auk þess sem menningarleg og kynjuð afstaða til þess hvernig umhyggjan og ástarkrafturinn eiga sér stað leika mikilvægt hlutverk.
forsida
Leiðari 45. tbl.

Vinnu­mark­að­ur, efna­hag­ur og mennt­un

Þetta áramótarit 2023 beinir sjónum að vinnumarkaðinum á Íslandi í víðtækum skilningi, sögulega, fræðilega, faglega og fram á veg. Umfjölluninni er ætlað að veita innsýn í þær áskoranir sem allir aðilar vinnumarkaðarins standa frammi fyrir í íslensku efnahagsumhverfi á komandi ári. Einnig er áhersla á menntun og þróun hennar fyrir vinnumarkaðinn í ljósi sjálfbærni og tækninýjunga meginþemað í viðtali blaðsins.
Peningar krónur
Grein 44. tbl.

Af hverju er hag­vöxt­ur að drag­ast sam­an svona hratt?

Hagvöxtur dregst nú hratt saman meðal annars vegna þess að lánakippurinn (e. credit impulse) er að deyja út. Lánakippur er summa halla ríkissjóðs og nýrra lána úr bankakerfinu.
deilimynd-asgeirbrynjar

Töl­urn­ar tala sínu máli

Töluleg gögn eru mikilvægt tól til að greina heiminn. Gögnin þurfa að vera aðgengileg og traust, samanberanleg og endurnýtanleg. Greinendur þurfa síðan að meta gögnin frá mismunandi sjónarhólum til þess að gagn verði af greiningunni og við öðlumst betri skilning á heiminum.
forsidumynd
Grein 44. tbl.

Lífs­kjara­samn­ing­ur­inn gerð­ur upp

Skýrslur Kjaratölfræðinefndar varpa ljósi á launaþróun og hlutfallslegri þróun á milli stéttarfélaga, greining á þeirri þróun út frá fyrri skýrslum og þeirri nýjustu skapar forsendur til uppgjörs á Lífskjarasamningnum sem sett er fram í þessari grein
Aðsent 43. tbl.

Að­ferða­fræði tímar­aða og þró­un hita­stigs

Loftslagsmálefnin eru mikið rædd þessar vikurnar, nú þegar að COP28 ráðstefnan stendur yfir í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Í því ljósi er seinni greinin í þessu tölublaði um aðferðafræði og spálíkön fyrir hitastig hér á jörðinni og þróun þess.
deilimynd-asgeirbrynjar

Gagn­semi gagn­rýn­inna grein­inga

Verðbólgan er víða farin að hjaðna en hérlendis er hún enn alltof há. Mikið hefur verið fjallað um peningamál og ástæður er orsakir verðbólgunnar hér á síðum Vísbendingar og verður líklega eitthvað áfram þar til hún er komin niður undir eða nær markmiðinu sem er 2,5% hérlendis.
48804215602_bb2b765456_k
Grein 43. tbl.

Nei­kvæð áhrif mik­ill­ar verð­bólgu

Peningastefnunefnd ákvað á vaxtaákvörðunarfundi sínum í nóvember 2023 að halda vöxtum óbreyttum í 9,25% og fundargerð nefndarinnar birtist ávalt tveimur vikum síðar, fyrr í vikunni og hér skrifar annar af tveimur ytri nefndarmönnum grein sem einnig skýrir vaxtaákvörðunina.
IMG_1885
Grein 42. tbl.

Ár­ang­ur­slitl­ar að­gerð­ir á hús­næð­is­mark­aði

Hagfræðingur Viðskiptaráðs greinir stuðningsaðgerðir stjórnvalda á húsnæðismarkaði og kemst að þeirri niðurstöðu að þær hafi unnið gegn markmiðum sínum en kallar eftir sértækari stuðningi til markvissari aðgerða.

Virkni vænt­inga og vinnu­mark­aðs

Verðbólgan hjaðnar ekki nema margir samverkandi þættir vinni saman. Engin ein kenning eða ein grein getur leyst úr þeim vanda sem verðbólgan er. Það að horfa alveg fram hjá því sem gerist í löndunum í kringum okkur getur verið mjög varasamt. Við verðum að halda áfram að greina flókinn veruleikan en varast að afgreiða málin með of einföldum hætti.
34362TL-highres
Grein 42. tbl.

Þrá­lát verð­bólga

Ástæður þess að verðbólga er þrálátari hérlendis en í nágrannalöndunum og hefur hjaðnað minna hér en í öllum samanburðarlöndunum eru margþættar. Munurinn á milli verðbólgumælinga í upphafi árs og nú undir lok ársins birtist skýrt í töflunni með þessari grein þar sem alþjóðlegur samanburður sýnir raunstöðuna sem er nánar greind í textanum.

Vext­ir og verð­bólga

Breytingar eru oft erfiðar. Sérstaklega hugmyndafræðilegar breytingar. Skynsamt fólk vill oftast ekkert skipta um skoðun. Þess vegna eiga nýjar hagfræðilegar hugmyndir og kenningar oftast ekkert auðvelt uppdráttar. Jafnvel þó þessar hagfræðilegu hugmyndir byggist á gamalgrónum sannleika, reynslu eða þekkingu.